Bréf (SG02-26)

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð: Forngripasafnið
  • Efni: „Um Forngripasafnið og skýrsluna um það. Enn eru uppi hugleiðingar um að birta úrdrátt af henni í Aarboger for nordisk oldlyndighed. Jón Sigurðsson er orðaður við embætti rektors Lærða skólans og líkneskið úr kirkjunni mun verða sent á Forngripasafnið.“ Sarpur, 2015
  • Nöfn tilgreind: Jón Sigurðsson, Elísabet (?)

Texti: =

bls. 1

Höskuldsstöðum, 21. apr. 1873


Salve domine!


Bréfi hef eg að svara, dags. 4. des. f.á.

Kærkomnar eru mér allar fréttir af forngripa-

safninu. Það er þó orðið talsvert, og er eigi

hætt við, að það aukist ekki, ef það nýtr

framvegis góðrar forstöðu. Eg hlakka til

að fá annað heptið af skýrslunni.

Þann útdrátt af skýrslu þinni, sem

eg gat um í fyrra bréfi, hugsaði eg mér svo,

að flokka hlutunum niðr í vissa kafla, og minnast

hinna helztu, er til hvers kafla heyrði, og lýsa

að eins nákvæmlega hinum allra merkustu. Þetta

hefði mér nokkuð kunnað að takast, hefði

eg einskorðað mig við heftið, sem út er komið,

en það verðr allt erfiðara, ef eg tek safnið

fyrir eftir því ókomna hefti með, er eg þekki lítið

eða ekkert til hlutanna, enda mundi það

verða talsvert mál, og oflöng ritgjörð í

"Årbögerne", því þar hugsaði eg að koma

því að. Önnur aðferð væri nú, ef eg eigi

sleppi því alveg, að taka að eins einstaka

kafla, t.a.m. um (Baldrsheims)taflið, um vopn

eða um einstaka tegund vopna, t.a.m. spjót,

um foldardálka (eða eitthvað, er markt-

verðast kynni að þykja).


  • ATH á spássíu hefur Eggert skrifað:

því eg man eftir mörgum hlutunum


bls. 2


Eg yrði náttúrulega að eiga á hættu,

hvort mér F tækist að gjöra það svo úr

garði, að það þætti meðtækilegt í "Årbögerne"

Það er heitið 20rd fyrir örkina, ef það á

annað borð, er tekið upp í þær, en hvort

borgað yrði "honorar" að auki fyrir myndir

ef þær fylgdu, veit eg ekki.

Eitthvað dregr Jón Sigurðsson líkleg

inn með sér, ef hann verðr "rektor" og endist

nokkur ár við það. Það kynni þá að koma

annað líf í Bókmenntafélagið í Reykjavík.

Eg nenni eigi að fara að politísera

núna. Eg ætla að lofa öðrum að hafa

fyrir því. - Líklega verða eigi ferðir

hér á milli og Reykjavíkr í sumar, svo að

hægt verði að koma Elísabetu til þín.

Nú húki hún mygluð upp á maura-

loftinu núna, því að undir stólunum á

kirkjunni þótti mér henni ekki vært.


Vertu nú sæll


Eggert Ólafsson Briem.


  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar