Bréf (SG02-38)

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð: málaravörur, Færeyjar, Kirkjubær, kirkja, rústir, biskupshús
  • Efni: „Guðbrandur hefur keypt málaravörur fyrir Sigurð. Hann segir frá ferðum sínum í Færeyjum, aðallega fornum húsum og kirkjum sem hann kom í þær.“ Sarpur, 2015
  • Nöfn tilgreind:

Texti:

bls. 1

Kmh. 19. Nov. 58.


Eg sendi þér nú pappírinn í stranga með blýöntunum innaní

með fullri utanáskript. Pappírinn og allt kostaði 2rd. 3p, svo

þú átt hjá mér 48sk. til síðari tíða, og er eg reiðubúinn ef þú síðar

vilt hafa mig fyrir fulltrúa. Eg var 3 daga í Færeyjum, og fórum

við einn daginn að skoða Kirkjubæ 11/2 mílu frá Þórshöfn, þar var

biskupsstóllinn gamli, þar eru til rústir af gamalli *

kirkju, sem aldrei varð fullgjör, og mun vera frá s: 1300 eða ekki

síðar, skrautlegt hús. Þar stendr og biskupsstofanhúsið gamla, sem

menn segja sé æfagamalt (frá 13. öld?). Neðst í kjallaranum

er fjós, og myrkrastofa, en ofaná er reykstofa og við enda

hennar portstofa, úr henni var gengið uppí biskupsstofuna

sem er efst, hún er nú hrörleg, og er minst sú stofan. Húsið

allt er ákafl sterk- og *smíðað, og veggirnir úr grjóti, allt er

auðsjáanl. mikið gamalt, en hvergi finnast útskurðir eða

skriptir á viðunum. Kirkjan sem í er messað er ljót, en

er þó eldri en hin, og er einfríð (ekki gotnesk). StólBríkurnar eru

allar útskornar, en merkið sýnir að skurðirnir eru allir yngri

en 1400 en vel gjörir. Það er mikils vert að sjá Kirkjubæ, það







bls. 2


munu fáir staðir á Norðurlöndum vera merkari, vegna fornmenja

þeirra sem þar eru, og hvað bærinn er reisulegur. Bóndinn býr

í biskupshúsunum gömlu. -

Skrifaðu mér hvernig þér gekk fyrir vestan, og hvernig

mönnum leið þar þegar þú fórst þaðan.

Lifðu allar stundir vel. Þinn góði einlægi vin

Guðbrandr









  • Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Tenglar: