Bréf (SG02-39)

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð: myndagerð, kvenréttindafélag, Munchen, kvenbúningur, skissur
  • Efni: „Um myndagerð Sigurðar. Jafnframt segir Guðbrandur frá nýstofnuðu þýsku kvenréttindafélagi, sem hyggst hafna franskri tísku. Stingur G. uppá að Sigurður fari til Munchen og agiteri fyrir kvenbúningnum. Blýantsskissur eftir S. eru aftan á bréfin.“ Sarpur, 2015
  • Nöfn tilgreind: Konrad van Maurer, Arnljótur Ólafsson?

Texti:

Kmhöfn 30. Mai 1859.

bls. 1


Góði vin!


Eg skammast mín að eg í vetr ekki hefir skrifað þér til, til

að svara þér uppá þitt góða bréf í haust. Ég veit ekki hvort þú

hefir fengið miða frá mér í haust eða vetr snemma um

leið og eg sendi þér pappírinn. En hvað um gildir þá er

litlu tapað þó það aldrei hafi komið fram. Mig langar til

að vita hve marga Hánefi bjúgnefi söðulnefi þú hefir dregið

upp á dúk eðr pappír í vetr, og hversu margar stíngilnefjur,

hefðir þú skipt í dálka, þá væri efni í nyja hagfræði handa

Arnljóti að ári. Þú ættir nú að vera kominn til Munchen

þar sem Maurer er; eg hefi séð í blöðunum, að mörg hundr-

uð af heldra kvennfólki þar hafi sagt Frökkum stríð á hendr,

á þann hátt, að þær hafa gengið í félag, að hafna öllum frans-

kum móðum. <ref group="sk"> 'A sumarmánuðum 1859 stóð yfir stríð milli Frakka og Austurríkismanna um sjálfstæði Ítalíu og var farið að halla á Austurríki. Hugsanlega kann það að skýra þessa uppákomu í Munchen. </ref> Nú eru allir hugvitsmenn þará ráð-

stefnu, hvern búning þær eigi taka í staðinn. Þar ætti því

að vera kominn einn talsmaðr fyrir húfu og eðr fald ef vel

vildi verða, og væri enginn betr til þess kjörinn en þú. Nú

er eg hræddr um, að fáar verði til að sinna faldinum, nema


bls. 2


ef vera skyldi kona Maurers<ref group="sk">Valerie von Faulhaber (1833-1912)</ref>.

Eg vonast eptir bréfi frá þér nú með póstskipi, eg skrifa

ekki meira að sinni því mig vantar efnið í það. -

Lifðu allar stundir vel. Þinn einlægi vin

Guðbrandr Vigfússon










  • Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="sk" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Tenglar: