Bréf (SG02-41)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 17. júlí 2011 kl. 00:26 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. júlí 2011 kl. 00:26 eftir Olga (spjall | framlög) (Created page with "* '''Handrit''': SG 02:41 Bréf frá Guðbrandi Vigfússyni (prófessor) í Oxford * '''Safn''': Þjóðminjasafn * '''Dagsetning''': 9. júlí 1860 * '''Bréfritari''': [[Guðbr...")
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02:41 Bréf frá Guðbrandi Vigfússyni (prófessor) í Oxford
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 9. júlí 1860
  • Bréfritari: Guðbrandur Vigfússon
  • Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: George Webbe Dasent

  • Texti:

Bls. 1
Kmh. <date when="1860-07-09">9. Juli 60</date>.
Besti vin!

Þakka þér fyrir hið síðasta bréf. Þú hefir ekki
alshendis skilið rétt orð mín. hlaðbúinn kyrtill
held eg ekki heyri til frumtexta Njálu, en það
finst í gömlu handriti frá 14. öld, en það er ekki
aldr handritanna, heldr gæði og samhljóðan
þeirra ef mörg eru svo sem er um Njálu,
sem allt er undir komið. Krókfaldr held
eg sé rétt, en í góðu pappírshandriti sög-
unnar stendr krakfaldr (=kraklegr
grannlur lítill faldr) Skyldi það geta verið rétt?
Krókfald hafa 2 skinnhandrit bæði frá 14 öld
og það held eg sé rétt, seinna segir mikinn
fald. En að efninu. <name type="person">Dasent</name> skrifar
mér, eg hafði vísað á þig með upp-
drátt til hallar Þorfinns og skála
Páls jarls; hann fer ekki heim í

  • ATH á spássíu hefur Sig skrifað:

að kraka upp sama og krækja upp *búka þá sagur*? kröku stjori sem krækist í botninn krakfaldur (=krókfaldur


Bls. 2
sumar, en skrifar mér og biðr mig að skrifa
þér, og biðja þig að gjöra uppdrátt af skála
<name type="person">Páls jarls</name> sem getr í Orkneyingasögu og
lýst er við dráp <name type="person">Sveins</name>. Þetta var árið 1135
og því ystir var <name type="person">Páll</name> 50 árum eptir Ólaf
kyrra, en þó virðist húsaskipan forn
eptir sögunni. Hann biðr um uppdrátt-
inn með næstu ferð, og því nú með
skipinu; láttu þetta ekki bregðast, þú
vær það vel borgað, og þú átt að setja upp
að þér sé vel borgað. <name type="person">Dasent</name> skrifar
aðeins uppdrátt af skála, eg veit ekki
víst hvort hann meinar Þorfinns eða
<name type="person">Páls</name>, hann vill hafa uppdrátt beggja.
Ef nú þér væri hægra og fljótlegra að
teikna upp höll Þorfinns, en hann var
samtíða <name type="person">Haraldi Sigurðarsyni</name> og <name type="person">Arnór
jarlaskáld</name> sat sem <name type="person">Arnór</name> sjálfr segir í
öndvegi hinu óæðra og drakk á jarl yfir
elda. Lýsing er best í Fagrskinnu og Fornu?*

  • ATH á spássíu hefur Guðbrandur skrifað:

<name type="person">Dasent</name> skrifar mér svo: "biðið þér vin yðar í Íslandi að gjöra uppdrátt af hinum forna skála fyrir mig. Ef þér skrifið með næstu gufuskipsferð þá fæ eg svar og uppdrátt í tíma. Þú verðr því endilega að flýta þér, en láta þó vera vel gjört.



Bls. 3
í Ol. sögu kyrra, en þetta kantu utanað, það
er ekki að tala um að þú farir nú að skoða
hallir, heldr að gjöra það eins og þú veist best,
og spá í eyðurnar, og væri gott að setja nöfn
með, eðr stutta lýsing, hvað sé ?* eh.?* og að vel
sé teiknað af því útlendir eiga að sjá það.
Láttu ekki hjá fara að senda annað hvort
uppdrátt af höll <name type="person">Þorfinns</name> eðr skála
<name type="person">Páls</name> heldr þó hið síðar ef þú getr en
til þess þarftu kannske að skoða sög-
una, en til að gjöra forna höll eptir hug-
mynd þinni með lengdum?*, er hægra því
engin sérstök lýsing er til á hans höll
svo þar hefir maðr frjálsar hendr, að hafa
hana sem forna konúngshöll.

Þinn einlægi vin
<name type="person">Guðbrandr Vigfússon</name>



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • (Titill 1):
  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: