Bréf (SG02-41)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 2. september 2015 kl. 21:28 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. september 2015 kl. 21:28 eftir Olga (spjall | framlög) (1 bréf (SG-02-41) færð á Bréf (SG-02-41))
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02:41 Bréf frá Guðbrandi Vigfússyni (prófessor) í Oxford
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 9. júlí 1860
  • Bréfritari: Guðbrandur Vigfússon
  • Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: George Webbe Dasent

  • Texti:

Bls. 1
Kmh. 9. Juli 60.
Besti vin!

Þakka þér fyrir hið síðasta bréf. Þú hefir ekki
alshendis skilið rétt orð mín. hlaðbúinn kyrtill
held eg ekki heyri til frumtexta Njálu, en það
finst í gömlu handriti frá 14. öld, en það er ekki
aldr handritanna, heldr gæði og samhljóðan
þeirra ef mörg eru svo sem er um Njálu,
sem allt er undir komið. Krókfaldr held
eg sé rétt, en í góðu pappírshandriti sög-
unnar stendr krakfaldr (=kraklegr
grannlur lítill faldr) Skyldi það geta verið rétt?
Krókfald hafa 2 skinnhandrit bæði frá 14 öld
og það held eg sé rétt, seinna segir mikinn
fald. En að efninu. Dasent skrifar
mér, eg hafði vísað á þig með upp-
drátt til hallar Þorfinns og skála
Páls jarls; hann fer ekki heim í

*ATH á spássíu hefur Sig skrifað:
að kraka upp sama og krækja upp biskupa sogur
kröku stjori sem krækist í botninn krakfaldur (=krókfaldur


Bls. 2
sumar, en skrifar mér og biðr mig að skrifa
þér, og biðja þig að gjöra uppdrátt af skála
Páls jarls sem getr í Orkneyingasögu og
lýst er við dráp Sveins. Þetta var árið 1135
og því ystir var Páll 50 árum eptir Ólaf
kyrra, en þó virðist húsaskipan forn
eptir sögunni. Hann biðr um uppdrátt-
inn með næstu ferð, og því nú með
skipinu; láttu þetta ekki bregðast, þú
vær það vel borgað, og þú átt að setja upp
að þér sé vel borgað. Dasent skrifar
aðeins uppdrátt af skála, eg veit ekki
víst hvort hann meinar Þorfinns eða
Páls, hann vill hafa uppdrátt beggja.
Ef nú þér væri hægra og fljótlegra að
teikna upp höll Þorfinns, en hann var
samtíða Haraldi Sigurðarsyni og Arnór
jarlaskáld sat sem Arnór sjálfr segir í
öndvegi hinu óæðra og drakk á jarl yfir
elda. Lýsing er best í Fagrskinnu og Fornrit


*ATH á spássíu hefur Guðbrandur skrifað:
Dasent skrifar mér svo: "biðið þér vin yðar í Íslandi að gjöra uppdrátt
af hinum forna skála fyrir mig. Ef þér skrifið með næstu gufuskipsferð
þá fæ eg svar og uppdrátt í tíma. Þú verðr því endilega að flýta þér,
en láta þó vera vel gjört.



Bls. 3
í Ol. sögu kyrra, en þetta kantu utanað, það
er ekki að tala um að þú farir nú að skoða
hallir, heldr að gjöra það eins og þú veist best,
og spá í eyðurnar, og væri gott að setja nöfn
með, eðr stutta lýsing, hvað sé skol eh. og að vel
sé teiknað af því útlendir eiga að sjá það.
Láttu ekki hjá fara að senda annað hvort
uppdrátt af höll Þorfinns eðr skála
Páls heldr þó hið síðar ef þú getr en
til þess þarftu kannske að skoða sög-
una, en til að gjöra forna höll eptir hug-
mynd þinni með lengdum, er hægra því
engin sérstök lýsing er til á hans höll
svo þar hefir maðr frjálsar hendr, að hafa
hana sem forna konúngshöll.

Þinn einlægi vin
Guðbrandr Vigfússon



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • (Titill 1):
  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: