Bréf (SG02-42)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 17. júlí 2011 kl. 00:27 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. júlí 2011 kl. 00:27 eftir Olga (spjall | framlög) (Created page with "* '''Handrit''': SG 02:42 Bréf frá Guðbrandi Vigfússyni (prófessor) í Oxford * '''Safn''': Þjóðminjasafn * '''Dagsetning''': 1. sept 1860 * '''Bréfritari''': [[Guðbran...")
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02:42 Bréf frá Guðbrandi Vigfússyni (prófessor) í Oxford
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 1. sept 1860
  • Bréfritari: Guðbrandur Vigfússon
  • Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:


  • Texti:

Bls. 1
Kmhöfn <date when="1860-09-01">1. Sept. 60</date>.

Góði vin!

Ég þakka þér kærlega fyrir sendínguna, hallir
og skála; mér fyrir mína parta líkar það vel,
og þykir vænt að slíkt komist á prent, gæti
það þá aptr vakið rannsóknir frekari um
hvað eina. Ég hefi enn ekki fengið bréf
frá <name type="person">Dasent</name> líkl. af því að hann er í
Skotlandi, en þegar hann kemur þaðan þá
skrifar hann. <name type="person">Grímr</name> sendir þetta, og getr og
verið að það verði nokkra stund á leiðinni.
með næstu postskipsferð skal eg því gjöra
þér betri skil og skrifa þér betr, en þakka þér
alúðlega hvað fljótt og vel þú hefir gjört þetta,
og skynsamlega, því hér var um að gjöra
að fá eitthvað sem sennilegast væri dregið
upp en ekki langar ransóknir, því þær


Bls. 2
geta síðar komið.
Ekki er eg samdóma þér allsendis um Kjart-
ansstein. Mér sýnist þú falla á sama skæri og
<name type="person">Eggert</name> og <name type="person">Finnr</name>. Steinninn sem þú heldr að sé *12 steinn*?
sýnist mér eptir uppdrætti þínum, að stafagerð
og stafsetníng ekki vera eldri en frá 15. öld og hin-
um ekki eldri. Fyrsta orðið er hær?* að mér sýnist
en það er 15. aldar stafsetning. Annars held
eg að enginn steinn sem á stendr her (eða
hær) hvílir, sé mjög gamall. - Á Kjart-
ansstein, ristum ár 1003?* ætti og að
standa Áleifr eða <name type="person">Oleifr</name> ekki <name type="person">Ólafr</name>, sem
er síðari mynd, sjá kvæði <name type="person">Hallfreðar</name>. Ég er
annars óviss um að nokkur Kjartanssteinn
sé eðr hafi verið í Borgarkirkju garði. Menn
vissu af Laxdælu að <name type="person">Kjartan</name> var grafinn að
Borg, meira þarf sögusögnin ekki til, ef þá sést
gamall*yr*? steinn sem menn ekki geta lesið,
þá kalla menn hann Kjartansstein. Kem?*
hafa skal dæmi, hvernig sögusagnir alþýðlegar


Bls. 3
myndast af litlum rökum, minni en þetta. Eg
held að enn sé á Íslandi ekki fundnir rúnasteinar
eldri en frá 14.(13?) öld þeir elstu. Rúnir hafa
aldrei verið mjög tíðkaðar á Íslandi, og Olafr hvíta-
skáld lærði rúnalist i Danmörk en í Danmörk
en einkum Svíþjóð er aðalheimkynni rúna-
listarinnar. - Rétt mun það lesið að þú
les <name type="person">Anpar</name> = <name type="person">Anþor</name> sem er afbökun úr
<name type="person">Arnór</name> = <name type="person">Arnþóri</name> og finst í bæjarnafni í
Borgarfirði Oaður?* eða Hindshvel?*. En þetta sýnir
þó að sá steinn getr heldr ekki gamall verið
Forláttu nú mas þetta. Ég skrifa þetta einsog
sé eg að ná undan rauðkembíngi:
Þinn einlægi vin
<name type="person">Guðbrandr</name>

Mikinn fald er í ráðningu <name type="person">Gests</name> á fyrsta
draum <name type="person">Guðrúnar</name>.



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: 07.2011

  • (Titill 1):
  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="nb" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: