Bréf (SG02-60)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 3. nóvember 2013 kl. 23:51 eftir Eoa2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. nóvember 2013 kl. 23:51 eftir Eoa2 (spjall | framlög) (Ný síða: * '''Handrit''': XXX Bréf XXXX * '''Safn''': XXX * '''Dagsetning''': 29. febrúar 1856 * '''Bréfritari''': Jón Guðmundsson * '''Staðsetning höfundar''': Kaupmannahöfn * '''Viðtak...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: XXX Bréf XXXX
  • Safn: XXX
  • Dagsetning: 29. febrúar 1856
  • Bréfritari: Jón Guðmundsson
  • Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: M. Bl.?, Jón skiperra?, Jón Sigurðsson, Bjering kaupm., Halberstadt?

Christian 8di,


(Titill 1)

  • Texti:

bls. 1
Rvík, 29. febr. 56
Góði vin!
Mér varð hvarft við, þegar eg sá *af?*(i) bréfi
yðar með síðasta Póstsk. - eg þakka
yður það margfaldlega, - að þér voruð
ekki þá enn búinn að fá myndina yðar
hans M. Bl. Eins og þér lögðuð fyrir
mig frá upphafi sendi eg hana héðan
strax í Ágúst mán með skipinu Jóns?*
skipherra. Skip þetta
var fragtað handa Bjering kaupm. hér,
af Verzlunarm Halberstadt Ol?* í Hofn
þeir hafa contór sitt í Compagniestræti
N61 eða 62 í stofunni, og hafði eg
raðgert *og sagt fyrir*(u) að kassinn með myndinni
og Adresse bref með til yðar yrði af
hent þar á contórinu og *geymt*(u)
*þar*(u) þángað til þess yrði vitjað; eg
vissi nl ekki yðar *Adresse*(u), en eg
skrifaði Jóni okkar Sigurðssyni um

bls. 2 sama leyti, og beiddi hann að skila þessu til yðar, svo að þér gæt uð vitjað myndarinnar þarna. Og eg vona, að þetta geti þannin komizt til leiðréttingar þó seint sé, en eg verð að biðja yður að reiðast mer ekki fyrir þetta. - Smátt gengur londum með að hugsa til yðar *þet*(y) eins og til svo margs sem má horfa þeim til gagns og sóma; - en mér ferst nú létt að hafa orð á þessu þegar eg sjálfur annað hvort ekki vil styrkja yðr að neinu eða þá get það ekki. Lítil avísun fyrir samskotum fáeinna *Eyjfirðin*(y) Akureyrar manna sem mér hefr verið send fylgir her með og hef eg "trans porterað" hana til yðar. Þetta er allt og sumt sem eg hef undir hondum til yðar að þessu sinni; - Þér eigið að vera orðinn svo fullnuma að þér fyrir Alþíngið 1857 getið sent *því*(u) vel gerða mynd Jons Sigurðssonar, viðlíka eða ekki mikið stærri en Christians 8.er sem þar hángir; - þeir Jón og Christian eru hvort eð er einu mennirnir sem vert er að minnast á í sambandi með upp hafi alþíngis og liklega langt fram eptir arum þess þó það standi; - á þessa leið ættuð þér að skrifa þínginu með myndinni eða i öllu falli það, að þér álitið, að alþíngi Islendínga sé kærkomin mynd þess mannsins sem mest og bezt allra hefir unnið fyrir upp hafi þess framhaldi og viðgangi; með þessu væri list ydar og búin hér vegleg og varanleg endur minning og mér þætti ekki ólíklegt að Alþingis menn viður kendi þetta bls. 3 að nokkru, og sæi það við yður á einhvern hátt. Fyrirgefið nú allt þetta mas! Yðar með virðingu elsku vin

J. Guðmundsson


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd: handrit.is

  • Skráð af::
  • Dagsetning:

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar