Bréf (SG02-67)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 4. nóvember 2013 kl. 00:14 eftir Eoa2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. nóvember 2013 kl. 00:14 eftir Eoa2 (spjall | framlög) (Ný síða: * '''Handrit''': XXX Bréf XXXX * '''Safn''': XXX * '''Dagsetning''': 3. nóvember 1870 * '''Bréfritari''': Jón Sigurðsson frá Gautlöndum * '''Staðsetning höfundar''': Gautlönd *...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: XXX Bréf XXXX
  • Safn: XXX
  • Dagsetning: 3. nóvember 1870
  • Bréfritari: Jón Sigurðsson frá Gautlöndum
  • Staðsetning höfundar: Gautlönd
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: Jón Halldórsson á Bjarnarstöðum í Bárðardal, J.Ó. ?,

B.? Sveinsson


(Titill 1)

  • Texti:

bls. 1
Gautl. 3. Nóvemb: 1870
Góði vin!
Brjef þitt 12. Sept: síðastl. hefi jeg með tekið
og kann þjer þökk fyrir það sem annað
ágæti mjer til handa. Skal jeg nú
leysa úr fyrirspurn þinni um
stóra kordann?* eins og jeg veit bezt
Hann fannst fyrir mörgum árum
(20-40) í svonefndu Suðrárhrauni
sem er áfast við Ódáðahraun, og
einn ángi afþví. Hver það fann
veit jeg ekki, en hreppstjóri Jón
Halldórsson á Bjarnarstöðum
í Bárdardal, sem dáin er fyrir
nokkrum árum, ánafnaði korðan
safninu, og hefur hann verið í
mínum vörslum síðan Jón
dó. Má svo álíta sem Jón heitin (sic)
hafi gefið hann safninu. -
Ekki finst mjer alþýðu
álasandi fyrir áhugaleysi á safn-
inu, því ekki er að vænta stórra
fjárframlaga frá hennar hendi
í því árferði sem nú er, og með
öllu sem að kallar. Er ekki að
vænta þess að safnið nái nokkr-
um verulegum viðgangi fy*
en stjórnin fæst til að sinna því
að nokkru; En það mun nú eiga

bls. 2
lángt í land ennþá, villtu vænti jeg
segja. Hjer hafa safnast einir 3-4
dalir handa *fjelaginu*(y) *safninu*(i) se, jeg mun
gjöra ykkur grein fyrir, þegar jeg
fæ því við komið. -
Hvað líður Baldri núna? og
hvað hefur J.Ó. fyrir stafni? Menn
eru farnir að óska Baldri lífs
aptur, eða einkverjum konu?*
maka, því flestum tekur að leiðast
ljettmetið í hinum blöðunum.
Hvað hefur B. Sveinsson fyrir
stafni? er hann fortakslaust
frá embættinu? Þú gjörðir mjer
hægt verk ef þú vildir við og við
fræða mig um þetta og fleira sem
við ber í Víkur greyinu - Máske*
jeg sjái hana aldrei meir - Jeg
skal hugsa til að launa þjer það
í Skjalda skriftum og bauga brot
um, sem hjer getur verið nóg af
og sem þjer máske þykir ágætt.
Nú er andinn ekki heima
og því er bezt að hætta og setja
punkt!. -
Þinn
Jón Sigurðsson


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd: handrit.is

  • Skráð af::
  • Dagsetning:

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar