Bréf (SG02-68)

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG:02:68 Bréf frá Jóni Sigurðssyni til Sigurðar Guðmundssonar <ref group= "sk">Bréfið var gefið út í sjá: Matthías Þórðarson: „Bréfaviðskifti Jóns Sigurðssonar forseta og Sigurðar Guðmundssonar málara 1861-1847” Árbók hins íslenzka fornleifafjelags 1929, Reykjavík 1929 bls. 34-107, hér bls. 36. </ref>
  • Safn: Þjóðminjasafn Íslands
  • Dagsetning: 1. nóvember 1861
  • Bréfritari: Jón Sigurðsson
  • Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð: Þingvellir, kort, rigerðir, Bókmenntafélagið
  • Efni: Safn Sigurðar Guðmundssonar Aðfangabók Þjóðminjasafnsins bls. 39: „Bréf frá Jóni Sigurðssyni, forseta, skjalaverði, Kaupmannahöfn. 14.5 x 23.1 cm. Dagsett 1.11.1861. Efni: Jón fjallar um gerð korts & ritgerðar um Alþingisstað hinn forna, sem hann hefur beðið Sigurð að gera. Hyggst Jón láta Bókmenntafélagið gefa hana út & senda ávísun til Bókmenntafélagsins líklega fyrirframgreiðsla til Sigurðar.” Sarpur, 2015
  • Nöfn tilgreind: Pétur Pétursson

  • Texti:

bls.1

Khöfn 1. Novbr. 1861.


Kæri vin,


Ástar þakkir fyrir yðar góða bréf 28. Septbr. og skýringar

um Þíngvalla ferðina. Eg sendi yður nú ávísan uppá Bókmennta

félagið og vona Professorinn<ref group= "sk">„þ.e. dr. Pétur Pétursson, síðar byskup; hann var forseti Reykjavíkur-deildar Bókmentafélagsins þá. – Af þessu er berýnilegt, að Jón Sigurðsson hefir beðið þá Björn og Sigurð um Þingvallaruppdráttinn fyrir Bókmentafélagið, enda er uppdráttur Björns enn í eigu þess. - Uppdrættir Sigurðar af álnasteininum og blótbollanum eru nú í safni hans til Þingvallarlýsingar, sem var fyrrum meðal skjala og bréfa Hafnardeildar, en nú er í safni Sigurðar í Þjóðminjasafninu. – Bréfið er prentað áður í Minningarriti J. S., bls. 327.” Árbók hins íslenzka fornleifafjelags 1929 bls. 98.</ref> láti honorera hana, því eg vil eingum

unna uppdrátta eða lýsinga á Þíngvelli nema bókmentafélaginu

- Mér líkar vel skoðun yðar í öllu málinu, en miklu meira

sakna eg – okkar á milli að segja – í framkvæmdinni, og

þarf að bæta út því smásaman. Það er rétt sem þér segið, að

allt fjalla á milli þarf að vera í kortinu, og einkum allir vegir

á Þíngvöll. Þarnæst annað kort yfir sögu öldina og þriðja yfir

seinni tíð. Þó spursmál, hvort þessi tvö ekki geta sameinast.

- Eg er og á því, að taka allt sem byggíng eða tópt eða

hleðsla heitir, að því leyti það er eptirtekta vert. – Eg hefi

skrifað Gunnl. um dálítið, sem eg safnaði. –

Mér þætti vænt, ef þér nú gerðuð kort sem þér segið

eptir yðar höfði, og skriflega lýsíng með stöðunum úr

lögunum til skyríngar. Þessi ritgjörð ætti að vera laung

nokkuð og ítarleg, og hugsa eg þér fengið Honorar fyrir hana

og hún kæmi í Safn til sögu Íslands, með korti.

Ekki þykir mér álnarsteinninn svo nákvæmur sem eg

vildi, og einkum vantar lýsíng um hann, en þó enn fremur

bæði uppdrátt og lýsíng á bollasteininum. - Þegar

bls. 2

vel væri gengið frá þíngvöllum, þá væri tíð að fara að Þíng-

skálum og víðar, en þetta er enginn léttaleikur, meðan fé-

lagið hefir ekki fjörugra styrktarlið en nú, því allt gengur

í áhugalausu dundi hjá flestum, og við fáum ekki tillögin.

Þeir hugsa víst, að nöfn sín á pappírnum sé nóg.

Forlátið mér þessar línur, og verið kærlega kvaddur

Yðar einlægur vin

Jón Sigurðsson.


  • Skráð af:: Edda Björnsdóttir
  • Dagsetning: Júní 2013

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar