Bréf (SG02-70)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 15. september 2015 kl. 16:51 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. september 2015 kl. 16:51 eftir Olga (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð: handrit, myndir, safn Árna Magnússonar, myndir, kvenbúningur, konur, Forngripasafnið, Danska Þjóðminjasafnið (Nationalmuseet)
  • Efni: „Jón hefur fengið danskan mann til að teikna upp lýsingar úr íslenskum handritum í safni Árna Magnússonar fyrir Sigurð. Aðallega búningateikningar (sbr. SG02:76). Upplýsingar um handritin, aldur þeirra & uppruna fylgir. Möguleikar á útvegun á brúðuhöfðum. Kvenfólkið & staða þess. Afstaða yfirmanns Danska Þjóðminjasafnsins til Forngripasafnsins.“ Safn Sigurðar Guðmundssonar Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, bls. 40 (Sarpur, 2015)
  • Nöfn tilgreind: Árni Magnússon, Einar Ísleifsson á Reykjum í Ölfusi, Ögmundur biskup, Sverrir Sigurðsson?, Hákon?, Magnús?, Eiríkur?, Ólafur helgi, Hákon Sverrisson, Vorsaa?, Páll Melsteð

Texti:

bls. 1

[Í efra vinstra horn hefur Sigurður skrifað:]

um handrit í A.M. safninu merkast


Khöfn 19. August 1870.


Háttvirti góði vin,


Nú hefi eg fengið handa yður uppdrættina, svo góða sem

eg held að þér getið notað, því eg fékk mann frá Bærentzen

til að Kalqvera myndirnar. Á höndinni sem er á nöfnunum

utanvið Valhöll sjáið þér, að það handrit mun vera frá

1680 þarumbil, og sýnist vera orðið til norður í Hrútafirði.

- Skinnbókin A.M. 345 Fol. sýnist vera skrifuð um eða nálægt

1570, kannske heldur fyrir en eptir. Hún er komin til Árna

Magn. frá Einari Ísleifssyni á Reykjum í Ölfusi, og kynni

vera þaðan ættuð eða þar úr nágrenninu. Þar bjuggu, sem

þér vitið, ættmenn Ögmundar biskups. Þar eru kóngamyndir

fremst, fallega dregnar, Sverrir - Hákon - Magnús - Eiríkur

og Ólafur helgi. Hákon Sverrisson er ekki, og hefir maðurinn

sem dró upp líklega ekki þekkt hann. Myndir með búníngum

koma fyrir allvíða, sem þér víst hafið noterað. Hestar líka og

söðlar og spángir á lend o.s.frv. - Myndina úr Bestiarius

getið þér ekki fengið betri, en að eg sendi yður exemplar af

öllum blöðunum, sem fornfræðafélagið gefur safninu ykkar.




bls. 2


Eg ímynda mér þér hafið það ekki áður. Hvar er annars þetta

sem þér bendið til um húsmyndirnar? þar sem tortryggð er yðar

mynd. - Um kvennmyndirnar í A.M. 345 get eg ekki sagt

annað, en hvað þér sjáið sjálfur á uppdrættinum, einúngis sýnist

mér að aptasta myndin sé nokkuð ljósblárri en í skinnbókinni,

en ekki sé ég betur en að búningurinn sé blár, og á brúðinni grænn.

uppslög á ermum eru hvít. höfuðböndin eru hvít með svörtum

krínglum (á brúðinni) eða deplum, en á hinum með svörtum

reitum eða tenníngum. Eins eru svosem krínglur dregnar með

bleki framaná þeim. Er þetta ekki drættir til að teikna silfur?

Það er víst ágætt ráð að búa til brúður í fullri stærð. Brúðu-

höfuð getur maður útvegað í fullri stærð, og mundu kosta á

að giska 2-3 dali hvert, eða kannske ekki svo mikið. Almennt

kosta brúðuhöfuð svosem 8 mörk, en hér verður að láta búa

til öðruvísi lagað höfuð, eptir uppdrætti frá yður eða fyrir

sögn, því hárið má ekki vera eins og vant er, sett upp í

snyrla, heldur svo lagað, sem þér vilið hafa það.

Það er gaman, að þér hafið getað komið dálitlu fylgi

í kvennfólkið. Þær geta gjört óttalega mikið, þar sem þær

leggjast á, því enginn er heitari í andanum, eða réttara að

segja tilfínningunum, og enginn fylgnari sér eða jafnvel



bls. 3


klókari, þar sem því er að skipta. Nú ættið þér að geta

fengið eitthvað frá Vorsaa, en ógæfan mun vera sú, að honum

þykir þið ekki díngla nóg aftaní sér, heldur fara ykkar

ferða. Það geta Danir aldrei fyrirgefið, þó það sé það eina

sem getur gagnað málinu bezt, því þeir vilja ekki láta

okkur fara harðara en þeim lízt, og ekki aðrar götur en

þeir vísa oss. Getið þér ekki fengið verkmennina, meðal-

borgarana og handverksmennina og beztu tómthúsmennina

í félagið til framtaks og framkvæmda?

Það sem eg sendi yður, er í kassa, sem er sendur Bók-

mentafélaginu, og adressaður til Páls Melsteðs. Gángi

þér eptir því þar, og munuð þér finna.

Forlátið línur þessar

Yðar einlægur vin

Jón Sigurðsson.



  • Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: 2011

Sjá einnig

Bréfið birsti í Matthías Þórðarsson: „Bréfaviðskifti Jóns Sigurðssonar forseta og Sigurðar Guðmundssonar málara 1861-1874, með athugasemdum og skýringum” Árbók hins íslenzka fornleifafjelags 1929, Reykjavík 1929 hér bls. 75-76.

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar