Bréf (SG02-71)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 4. júlí 2013 kl. 09:50 eftir Edda (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. júlí 2013 kl. 09:50 eftir Edda (spjall | framlög) (Ný síða: * '''Handrit''': SG:02:71 Bréf frá Jóni Sigurðssyni til Sigurðar Guðmundssonar * '''Safn''': Þjóðminjasafn Íslands * '''Dagsetning''': 4. mars 1871 * '''Bréfritari''': Jón Si...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG:02:71 Bréf frá Jóni Sigurðssyni til Sigurðar Guðmundssonar
  • Safn: Þjóðminjasafn Íslands
  • Dagsetning: 4. mars 1871
  • Bréfritari: Jón Sigurðsson
  • Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð: Skúli Nordal, Benedikt Gröndal, Jens
  • Efni: Safn Sigurðar Guðmundssonar Aðfangabók Þjóðminjasafnsins bls. 40: „Bréf frá Jóni Sigurðssyni, forseta, skjalaverði, Kaupmannahöfn. 13.5 x 20.9 cm. Dagsett 4.3.1871. Efni: Kaup á brúðuhöfðum sem Jón hefur gert fyrir Sigurð. Um útgáfu Benedikts Gröndal á smápésum & þann úlfaþyt sem hún veldur.”
  • Nöfn tilgreind:

Khöfn 4 Marts 1871

  • Texti:

bls. 1


Khöfn 4. Marts 1871

Elskulegi vin,

Með seðli þessum sendi eg yður í kassa til Jens br. m.
brúðuhöfuð, en eg veit það mun ekki vera eptir óskum.
Hér fást þau ekki nema áþekk þessu, og kostar þessi
3[?]8/<ref>[ath!]</ref>., en sá sem keypt er hjá segist geta útvegð höfuð
öldúngis eins og maður vili, ef hann fái góðan og
réttan uppdrátt, og beðið verði um nokkuð margar.
eg held ekki færri en sex. , en þá yrði hvert höfuð
eins 2-3 dali, þegar þau eiga að vera hérumbil
í náttúrulegri stærð, og þá yrði eg að fá frá yður
mælíngar allar eða helzt uppdrátt höfuðsins
einsog þér vilið hafa það.
Já, því er miður, að svo lítur út sem Gröndal ætli
að gipta sig uppá þau roð, sem hann fær fyrir
skammapjesa sína um sig sjálfan og land sitt og
þjóð. Skrýtnast er, að eg held stjórnarmennirnir
viti varla hvað hann skrifar, fyr en á eptir, en frá
okkar sjónarmiði finnst ekki neitt svo óheppilegt í

bls. 2


þessu skrifli hans, því allir hljóta að sjá, að það er eins og
eptir fullan mann, og ómæt ómaga orð, en sumir held eg
færi úr flokki stjórnarinnar og til okkar, þegar þeir sjá
slík „innlegg”, prentuð á alþjóðlegan kosnað. Getur
enginn samið háðslega grein, stutta og gagnorða, og komið
henni í þjóðólf?
Forlátið mér miða þenna
Yðar einlægur vin
Jón Sigurðsson.

Hvernig er þessi dróttkvæða drápa um Skúla Nordal?


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Edda Björnsdóttir
  • Dagsetning: Júní 2013

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar

589613.jpg 589612.jpg