Bréf (SG02-80)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 12. júlí 2011 kl. 16:15 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2011 kl. 16:15 eftir Olga (spjall | framlög)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02:80 Bréf frá Magnúsi Stephensen lækni
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 12. júlí. 1859
  • Bréfritari: Magnús Stephensen læknir
  • Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: Gunnlaugur Blöndal, Guðbrandur Vigfússon?, Konrad van Maurer

  • Texti:


bls. 1
Höfn 12. d. júlím. 1859.

Guten Morgen Sir!

Gratias - tibi ago pro litterir cum Sarto [ATH latínu ] acceptir, quikus vero te bene gerere, atg immutatum esse. Bréfið þið þyki mjer hardla ómerkilegt, því að það eru ekki einu sinni skammir eða grýn, heldur tómir*(innsk - fyrir ofan fuvir) (fuvir)*(í sviga) Bommertur og mont. Hræðilega hefur þú misskilið mig að þú skulir halda þú hafir komið of næri mjer þó þú skammaðir Reykjavík, en forri?* fer því jeg hef aldrei haft og hef víst aldrei mikið til ofun fyrir henni, og síst ímynda jeg mjer hún hafi batnað mikið við að þú hefur verið þar í vetur, því þótt þú getir eitthvað bætt sem víst er ekki mikið þá verður þar að vera hæpa?* að bæta enn í Rv.
bls. 2
Gunnlaugur Blöndal fer heim núna, og hann segir þjer fregnirnar ef þú verður að skoða þær í Rv enn verðirðu uppí sveit þá vantar þig ekkert um fréttir; opt langar mig þú hjer værir kominn til þess að fljúgast á við þig, og stundum óska jeg að myndin þín sem hjer hangir, með skítuga kinnina *uppyfir púltinu mínu*(innsk) væri orðin lifandi til þess að jeg gæti skammað þig. - Guðbr. tyrfni ætlar til Maurers og hángir í rassinum á honum eins og blóðsuga, eitthvað held jeg hann ljúgi og rægi *mína*? einsog í fyrra. Margir af okkur hér búa úti á landi, og fara þangað í feríunni. Nú er brjefið orðið eins langt og þitt þó þú mælir laxem?* og því vildi jeg að endingu biðja og segja: efri ranglætir rikja efri efri niða nóttu [ATH erfitt að greina nkl þennan texta] dýrðar Jerúsalems eilífðar efri efri dýrðar jóla efri myrkra mátta óendanlegu jarðar
bls. 3
dýrðar Jerúsalems eilífðar anda efri niða nóttu efri sulu efri lyga ljósa anda efri ranglætir ríkja óendanlegu efri efri fráföllnu föðurlanda (bir).

[*ATH hér er ritað með rúnaletri...?*]

Magnús Stephensen.



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: XX.07.2011