Bréf (SG02-81)

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð: myndir, tíðarfar, Íslendingar, Kaupmannahöfn
  • Efni: „Almenn svör við bréfi Sigurðar, um hans hagi. Um myndir hans af Randrup og Birni Gunnlaugssyni. Almenn tíðindi af nafngreindum Íslendingum í Kaupmannahöfn.“ Sarpur, 2015
  • Nöfn tilgreind: Jón Eiríksson, Randrup, ? Gunnlaugssen, Guðbrandur Vigfússon?, Arnljótur ?, frú Eiríksson?, frú Sigurðsson?, Brandur ?

Texti:

bls. 1


Höfn 26. ágústm. 1859.


Salve multum. <ref group="sk">Salve multum: (Lat.)Miklar kveðjur </ref>

Mikill veraldar-asni og öfugsnáði

getur þú verið, að sjá ekki að það er upp-

hefð fyrir þig að skrifa öðrum eins höfð-

ingja og lærdómsmanni og mjer,

og það miklu optar enn jeg skrifa þjer,

enn þú snýrð þessu um og því

sendi jeg þjer þennan umvöndun-

ar Kapitula. Það gleður mig að heyra

að þjer líður vel og þú hefur nokkuð

gera?*, svo þú þarft ekki að vera fri-

viligeradur?* Dagdriver <ref group="sk">frivillig dagdriver:(Dan.) sjálfviljugur slarkari </ref> i Rv, einsog

Jón Eiríksson; aptur á hinn bóginn

þykja mjer hjákátleg Subjekt, sem

þú klýnir upp á pappírinn, og




bls. 2


jeg verð að segja, að svo hjelt jeg þú

hefðir aukinn Sands?* fyrir hinu

fagra að þú mundir ekki ljá þig fyrir

10rd til annarrar eins fúlmennsku og

mála hið mesta kýrkuntu-andlit*(undirstrikað),

sem sólin hefur sjeð, nefnil. Randrups <ref group="sk">Niels Anker Seher Randrup (1819-1888), lyfsali í Reykjavík frá 1850 til 1877. </ref>

annars er myndin nógu vel gjörð

held jeg eftir snjáldina/ni á honum. <ref>Sjá Halldór J. Jónsson. "Mannamyndir Sigurðar Guðmundssonar málara". Árbók Hins Íslenska Fornleifafélags. 74. árg. 1977. bls. 49. Þar er sagt að Randrup hafi flust til Kaupmannahafnar 1877 og mynd þessi sennilega með honum. </ref>

Myndina af Gunnlaugssen <ref group="sk">Líklega mynd Sigurðar af Birni Gunnlaugssyni, yfirkennara. Hún er nefnd 'mynd af Gunnlaugssen' í uppskrift síðar. Sjá Halldór Jónsson. Mannamyndir Sigurðar málara. Árbók HÍF 74. árg. 1977, bls. 15. </ref> kann

jeg þjer aptur á móti mikla þökk

fyrir. Allir hjer lifa við hið gamla

Guðbr. *þinn*(undirstrikað) er suður í Mineku/Múneku?* <ref group="sk">Væntanlega: Munchen </ref> og

hlær víst *vestanhlátur*(undirstrikað) þar óspart.

Mjer finnst annars þínir miklu

vinir hann og Arnljótur sjeu farnir

að verða uppvísir að fýlmennsku,

þarsem annar níðist á Konráði og

hefur borið hann á hræribrekkur

við útlenda menn, enn hinn



bls. 3


er að leitast við sem mesta að eyði-

leggja frú Sigurðsson, sem þó hefur

haldið í honum lífinu lengi, það

sannast á honum gleymt er þá

gleypt er, hann hefur ætlað sjer

þetta lengi það veit jeg með vissu.

Hinir lifa við það gamla sem sagt.

Brandur drekkur og slarkar.

Um frjettir varðar þig ekkert.

Jeg er nú ekki lengur að mannskemma

mig á að skrifa þjer, því *hvað*(innsk) skal

svín með silfur á grösunum eða

hundur í helgidómi?

Í Guðsfriði



Magnús Stephensen



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: 07.2011

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar