Bréf (SG02-85)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 12. júlí 2011 kl. 16:35 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2011 kl. 16:35 eftir Olga (spjall | framlög) (Ný síða: * '''Handrit''': SG 02:85 Bréf frá Magnúsi Stephensen lækni * '''Safn''': Þjóðminjasafn * '''Dagsetning''': 17. apríl 1861 * '''Bréfritari''': Magnús Stephensen læknir * '''St...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02:85 Bréf frá Magnúsi Stephensen lækni
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 17. apríl 1861
  • Bréfritari: Magnús Stephensen læknir
  • Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind:

  • Texti:


bls. 1
Höfn 17. apríl 1861.

Sigurður geni!

Vitlaus vissi jeg þú varst, enn jeg hjelt þú kynnir manna siði það er að segja dóna og þú mundir skrifa höfðingjum þegar þeir skrifa þjer, enn jeg hef farið þar merkilega vilt, því ekki hefur þjer enn þóknast að skrifa mjer síðan í fyrra og segja mjer eitthvað hvernig þjer líðir, jeg hef einungis heyrt undir væng, að þú gjörðir „Favores" heima í ,Gjoglu konsten" og er það ekki ólíklegt eptir þínu eðli, enn það þyki mjer þó mest vert að jeg hef sjeð *rulla*(u) frá þjer í Þjóðólfi sem líkist þjer mjög svo. Frjettir getur þú lesið úr blöðunum, tal ?* anti segi jeg. Skrifaðu mjer nú langt og gott brjef, þá skal jeg skrifa þjer allra handa smádót héðan, sem þú skalt hlæja að
bls. 2
Annars hef jeg ekki tíma til nú að slúðra við þig Vertu sæll bölvaður asninn þinn, ?*(y) óska þér góðs tímars og að þú megir verða ís- lenskur Gjögler?* og ekki danskur, því það er nóg af þeim hjer, og þarf vart Coloni af þeim heima á Fróni

Magnús Stephensen



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: XX.07.2011