Munur á milli breytinga „Bréf (SG02-86)“

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 2. september 2015 kl. 21:48

  • Handrit: SG 02:86 Bréf frá Magnúsi Stephensen lækni
  • Safn: Þjóðminjasafn Íslands
  • Dagsetning: 31. maí 1861
  • Bréfritari: Magnús Stephensen læknir
  • Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:


Bréf frá Magnúsi Stephensen lækni, 31. maí 1861

  • Texti:

bls. 1
Höfn 31. maím. 1861

Herra loddari

Gratias fyrir brjefið sem reyndar var ógurleg
vitleysa, þú ert víst búinn að fá svima eða
delirium af skítalykt af sjálfum þjer, og
þykir mjer gott á meðan ekki verður verra
g þú ekki verður verri, því mig grunar
einhvern veginn að þú munir einhvern
tíma fá sömu afdrif g maður sem Ól.
Briem kvað um g þetta var viðurlag:
Úr skítalykt af sjálfum sjer
sofnaði burtu í hitt eð fyrra.
Það gleður mig að þjer gengur vel með bún-
inginn g hann útbreiðist vel, enn undar-
lega lífstíð tekur þú um allan loddaraskap.
þinn, kannskje hamingjan hafi opnað


bls. 2
þinn líkama og sálaraugu g þú sjert farinn að sjá
hvers íllmálanlega svívirðilegur þú ert þar, g
allir þessir bölvaðir Giglare heima, jeg vildi líka
óska að svo væri. Nýjungar eru héðan engar
sem þig varðar um nema af því mig minnir að
þú væri vitlaus eptir gamla Grundtvig þá
skal þjer sagt, að hann igær hjelt 50 ára
jubilaerum sitt sem prestur og var góður gjörður að bisk-
upi um leið. Sigurður Eiríksson man ekkert
eptir trafakeflinu nú sem stendur, enn vera má
hann muni betur síðar meir. Hjálminn þará-
móti sendi jeg þjer nú líklega með Arnljóti ef
hann vill taka hann, eða þá með einhverjum
öðrum sólbelli öðrum ef hann ekki vill ganga inn
á það. Mjer og öllum sem þig varðar um líður
vel nema hvað einhver einstakur kann að hafa
lekanda, enn það er nú enginn hættuveiki, eins


bls. 3
og þú ferð nærri um að fornu fari prof!
Nú hef jeg ekki meira að segja þjer, eigðu
mig á fæti ef þú ekki skrifar mjer núna
aptur með skipinu.
Vertu nú sæll loddari minn og blessaður
Magnús Stephensen.


  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning:

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar