Bréf (SG02-86)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 12. júlí 2011 kl. 16:36 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2011 kl. 16:36 eftir Olga (spjall | framlög) (Ný síða: * '''Handrit''': SG 02:86 Bréf frá Magnúsi Stephensen lækni * '''Safn''': Þjóðminjasafn * '''Dagsetning''': 31. maí 1861 * '''Bréfritari''': Magnús Stephensen læknir * '''Sta...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search
  • Handrit: SG 02:86 Bréf frá Magnúsi Stephensen lækni
  • Safn: Þjóðminjasafn
  • Dagsetning: 31. maí 1861
  • Bréfritari: Magnús Stephensen læknir
  • Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
  • Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
  • Staðsetning viðtakanda:

  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: Grundtvig, Sigurður Eiríksson, Arnljótur ?

  • Texti:


bls. 1
Höfn 31. maím. 1861

Herra loddari

Gratias fyrir brjefið sem reyndar var ógurleg vitleysa, þú ert víst búinn að fá svima eða delirium af skítalykt af sjálfum þjer, og þykir mjer gott á meðan ekki verður verra (o)g þú ekki verður verri, því mig grunar einhvern veginn að þú munir einhvern tíma fá sömu afdrif (o)g maður sem Ól. Briem kvað um (o)g þetta var viðurlag: Úr skítalykt af sjálfum sjer sofnaði burtu í hitt eð fyrra. Það gleður mig að þjer gengur vel með bún- inginn (o)g hann útbreiðist vel, enn undar- lega lífstíð tekur þú um allan loddaraskap. þinn, kenniske?* hamingjan hafi opnað
bls. 2
þinn líkama og sálaraugu (o)g þú sjert farinn að sjá hvers íllmálanlega?* svívirðilegur þú ert þar, (o)g allir þessir bölvaðir Giglare?* heima, jeg vildi líka óska að svo væri. Nýjungar eru héðan engar sem þig varðar um nema af því mig minnir að þú væri vitlaus eptir gamla Grundtvig þá skal þjer sagt, að hann igær hjelt 50 ára jubilaerum sitt sem prestur og var góður gjörður að bisk- upi um leið. Sigurður Eiríksson man ekkert eptir trafakeflinu nú sem stendur, enn vera má hann muni betur síðar meir. Hjálminn þará- móti sendi jeg þjer nú líklega með Arnljóti ef hann vill taka hann, eða þá með einhverjum öðrum sólbelli?* öðrum(sic) ef hann ekki vill ganga inn á það. Mjer og öllum sem þig varðar um líður vel nema hvað einhver einstakur kann að hafa lekanda, enn það er nú enginn hættuveiki, eins
bls. 3
og þú ferð nærri um að fornu fari prof! Nú hef jeg ekki meira að segja þjer, eigðu mig á fæti ef þú ekki skrifar mjer núna aptur með skipinu.

Vertu nú sæll loddari minn og blessaður

Magnús Stephensen.



  • Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir
  • Dagsetning: XX.07.2011