Bréf (SG02-86)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 2. september 2015 kl. 21:59 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. september 2015 kl. 21:59 eftir Olga (spjall | framlög)
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð: tíðindi, próf
  • Efni: „Bréf frá Magnúsi Stephensen, lækni, Vestmannaeyjum. 13,5 x 21,8 cm. Dagsett 8.7.1860 Kaupmannahöfn. Efni: Almenn tíðindi, próf og gangur þeirra og þess háttar. Að mestu á latínu..“ Sarpur, 2015
  • Nöfn tilgreind: Grundtvig, Sigurður Eiríksson, Arnljótur (Ólafsson)

Texti:

bls. 1

Höfn 31. maím. 1861


Herra loddari


Gratias fyrir brjefið sem reyndar var ógurleg

vitleysa, þú ert víst búinn að fá svima eða

delirium af skítalykt af sjálfum þjer, og

þykir mjer gott á meðan ekki verður verra

g þú ekki verður verri, því mig grunar

einhvern veginn að þú munir einhvern

tíma fá sömu afdrif g maður sem Ól.

Briem kvað um g þetta var viðurlag:

Úr skítalykt af sjálfum sjer

sofnaði burtu í hitt eð fyrra.

Það gleður mig að þjer gengur vel með bún-

inginn g hann útbreiðist vel, enn undar-

lega lífstíð tekur þú um allan loddaraskap.

þinn, kannskje hamingjan hafi opnað


bls. 2


þinn líkama og sálaraugu g þú sjert farinn að sjá

hvers íllmálanlega svívirðilegur þú ert þar, g

allir þessir bölvaðir Giglare heima, jeg vildi líka

óska að svo væri. Nýjungar eru héðan engar

sem þig varðar um nema af því mig minnir að

þú væri vitlaus eptir gamla Grundtvig þá

skal þjer sagt, að hann igær hjelt 50 ára

jubilaerum sitt sem prestur og var góður gjörður að bisk-

upi um leið. Sigurður Eiríksson man ekkert

eptir trafakeflinu nú sem stendur, enn vera má

hann muni betur síðar meir. Hjálminn þará-

móti sendi jeg þjer nú líklega með Arnljóti ef

hann vill taka hann, eða þá með einhverjum

öðrum sólbelli öðrum ef hann ekki vill ganga inn

á það. Mjer og öllum sem þig varðar um líður

vel nema hvað einhver einstakur kann að hafa

lekanda, enn það er nú enginn hættuveiki, eins


bls. 3


og þú ferð nærri um að fornu fari prof!

Nú hef jeg ekki meira að segja þjer, eigðu

mig á fæti ef þú ekki skrifar mjer núna

aptur með skipinu.

Vertu nú sæll loddari minn og blessaður

Magnús Stephensen.


  • Skráð af: Heiða, Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning:

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar