Bréf (SG02-96)

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð: kvenbúningur, teikningar, stokkabeltispör
  • Efni: „Enn um kvenbúninginn. Sigurður hefur sent nýjar teikningar af búningnum, sem eru konu Ólafs að skapi. Hyggst hún nú sauma sér búning eftir hans fyrirmynd. Því eru miklar vangaveltur um alla gerð búningsins. En þó eru meiri um stokkabeltispör sem Ólafur fól Sigurði að kaup. (sbr. SG:02:94).“ Sarpur, 2015
  • Nöfn tilgreind: séra Davíð, séra Hjörleifur, Lárus sýslumaður, frú Christiansen

Texti:

bls. 1


Ási 21. Júni 1860

Kæri frændi!

Bréf þitt af 24 þ.m. þakka eg innilega, og kona

mín eins fyrir sendingarnar, sem séra Davíð skilaði

öllu óskemmdu; og byrtist hún nú í öllu þessu

státsi í brullaupi hans í fyrra dag, því hún var

þá búin með fötin, en fékk fallegt belti að láni; svart

slör hafði hún yfir faldinum, og halda allir það

tilhliðilegra einkum fyrir konur. Nú þarftu að

segja þér söguna: Það var „drukkið priment og

og klarent" svo var dæmt og dæmt; öllum eða flestum

þótti faldurinn ljótur, þó flestir viðurkéndu hann

líðanlegri en hinn, og sjálfsagt þægri, enginn

saknaði miðleggingarinnar á treyjunni, en baldíringin

þókti sumum mjó, og kveðin öll með sömu raust;

fatsaumurinn af veggtjaldi Solveigar okkar, þókti

öllum fallegur, hann er með litum, leggir dökkgrænir

utan en ljósgrænir innan að þverböndum, enn

þverböndin annars engin, heldur kljúfast blöðin

þar út, flest græn utan, það eru þrenn þríblöð eins

og þú manst, þá er annað efra blaðið hárauðt innan,

en hitt blárauðt, en broddblaðið eð miðblaðið sem er

breiðast er saumað með blárauðum æðum, og

broddur þess að fremstu æðinni hvítgulur, miðjan

að efri æðinni rauðgul, og efsti hlutin hárauður;

og það er fyrir mínum augum fagurt, svona eru


bls. 2


þær allar, enn fötin eru úr dökku klæði góðu, svo eg

vona þau þoli nokkuð, koffrið er að sönnu dáfallegt,

ef það væri nógu gott í því; er það ekki sannarlegt

látún? það skulum við hugsa um síðar, enn stjörnu

koffur hefði kona mín gaman af að sjá, þó henni

þyki óvíst það sé fegra en þetta, og beltinu hefur

þú lofað.

Jeg var að segja þér frá dómunum, nú var

fólk við úr 3r sýslum og fáir sögðu gott nema

séra Davíð og séra Hjörleifur þeir börðust fyrir

okkar málefni, og Hjörl. pr þakkaði konu minni mikið

vel fyrir að hún hefði orðið fyrst til að koma þessm

búning upp í norðurlandi. Lárus sýslum. var einna

vestur, hann lofaði þér góðu ef hann fyndi þig,

hann sagði þetta væri svo líkt stríðsmanna húfum,

og þessvegna nefnilega ókvennlegt höfuðvat, hann

sagði að skotthúfan væri fegurst af öllum höfuðfötum,

sem hann hefði séð, og hún ætti að vera hátíða höfuð-

fatið, en einhver skrattin hverdag, því hún væri ofgóð

til þess. Hræddur er eg um að þú fáir aldrei frú Christian-

sen á þitt mál. Sumir vildu hafa faldspaðan ögn

breiðari og þynnri, það er að skilja, að nokkru

leyti líkari þeim sem við höfum báðir þekkt en miklu

minni, géturðu nú ómögulega áttað þig í að hann sé

kvenlegri svo?

Loksins er nú að tala um möttulinn, hann vantaði

nú í þetta sinn, hann á víst að vera úr klæði eins og


bls. 3


hitt, en með hvaða sniði? krínglóttur segir þú, eða hálf-

kringla en hvað stór að þvermáli? sirkilinn hefi eg,

á hann að vera kögraður á jöðrunum? eða lægður með

agraman, hann á víst að vera fóðraður, eða tvífóðraður.

Sé nú nokkuð meira til í þínum haus þessu máli

til eflingar, ermahnappar armbönd eða eitthvað, ættir

þú að láta mig fá það sem fyrst, með skýrum reikn-

íngi yfir það hvað það kostar, eins og beltið, því meira

vill ekki konan þyggja af þér að gjöf enn þetta

þáði hún með góðu géði, eins og við vitum þú hefir

útilátið það.

Þinn frændi

Ó. Sigurðsson


bls. 4/forsíða


S.T.

Herra Málari Sigurður Guðmundsson

í/ Reykjavík


(*)ATH Sigurður hefur skrifað á forsíðuna:

Guðbjörg Eyjolfsdóttir í Fljótsdal








  • Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar