Bréf (SG02-99)

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð: kvenbúningur
  • Efni: „Möttullinn er nú fullsaumaður en Sigurður stendur sig ekki í öflun á pörum og hvetur Ólafur hann til dáða. Búningurinn er, að sögn, að breiðast út nyrðra.“ Sarpur, 2015
  • Nöfn tilgreind: Gísli Brynjúlfsson, Böðvar í Ketu

Texti:

bls. 1

Ási 6. Janúar 1861

Kæri frændi!

Bréf þitt af 26 Marts f.á. þakka eg

nú þó seint sé. Þú lætur mig merkja

að þér líki allvel saumaskapur konu

minnar á bugnum sem hún sendi þér,

en litarhögun var ekki hægt að koma

vel fyrir á þeim uppdrætti, og vildi

hún fá hendfagri uppdrátt í því efni

en hann er; baldírað blað vildi hún

líka fá hjá þér í fyrra að gamni

sínu. Nú er hún búin með möttulinn

og beltið, og má því til á hverri hátíð

að nota gömul og hálfljót sylfurpör

vegna þess þú stendur þig svo ílla

með pörin nýju, sem ega þó að full-

komna stázið; uppí þau mun jeg hafa

sendt þér 10rdl með Gísla Brinjólfss.

í hitt hið fyrra, og aptur í fyrra 20rdl

með Böðvari í Ketu; þó skalt þú ekki

hugsa að þessir 30rdl ættu að skapa

verð þeirra heldur þú og smiðurinn.

koffur bað jeg þig líka um í fyrra, því

nú er kona mín að byrja að búa aðra










bls. 2


og þriðja og fjórða eru nú farnar að út-

vega sér vír og sefyrgarn. Jeg hef

þá ekki meira að skrifa þér í þetta

sinn, því jeg vona þú sýnir nú ein-

hverja rögg af þér fyrir páskana.

Þinn einl. frændi

Ó. Sigurðsson










  • Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
  • Dagsetning: 07.2011

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar