Fundur 10.jan., 1863

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
Fundarbók, 1861-66.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.


  • Lykilorð:
  • Umræðuefni:
  • Nöfn tilgreind: XXX

Texti


Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0045r)


Ar 1863, 10 januar var fundur haldinn í félaginu

voru allir félagsmenn á fundi nema varaskrifari varaforseti

Sigurður málari Guðmundsson og Jónas Jonasson

1. Af þeim sem ákveðið var að bjóða í félagið á fundi 3. þ.m.

Páll skrifari Jóhannesson og verslunarmaður Sigurður

Einarsson. Ljet forseti skrifara lesa upp lög félagsins

og geingu síðan menn þessir í félagið, skrifuðu nöfn

sínu undir lög þess, og guldu tillög sín



Bls. 2 (Lbs 486_4to, 0045v)


2 Jón Hjaltalín las upp brjef er stud Eggert Briem hafði ritað

hönum og gaf Hjaltalín félaginu brjef þetta er félaginu þótti vel

og sögulega orðað.

3 Nefnd sú er á seinasta fundi hafði kosin verið til að

velja efni í kappræður lagði fram kappræðuefni 11 að tölu

og var síðan Jón Hjaltalín kosin til á næsta fundi að halda

kappræðu um 1 efnið er hljóðaði um að lýsa fæðingu

og uppvexti ástarinnar og voru þeir Matthías Jokkumson

og Þorsteinn Jonsson valdir til að opponera hönum.

Einnig var ákveðið að Matt. Jochumsson hjeldi kappræður

um hvað sje hið sanna og skáldlega í draugatrú og álfatrú skyldu

Jón Árnason og Sveinn Skúlason gjöra athugasemdir við ræðu

hans.

Líka voru valdir menn til að taka tóku menn að sjer að svara hinum

efnum þeim er nefndin hafði stúngið uppá, seinna meir

Fundi slitið

H.E.Helgesen Á Gíslason



  • Skráð af: Eiríkur
  • Dagsetning: 01.2013

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tenglar