Fundur 12.okt., 1861

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
Fundarbók, 1861-66.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.



Texti:


Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0024r)


Ár 1861, laugardaginn hinn 12. Oct, kl. 8. e.m

var fundur haldinn í félaginu. Allir voru mættir

nema O. Finsen, Brandur Tómasson, S. Guðmundarson og

M. Jochumsson. Hinn fyrsti var frífundinn, annar

borgaði þegar 1sk sekt, hinn þiðji var álitinn 1sk

sekur, hinn 4 v álitinn frí frá sekt

1. Hélt forseti ræðu til þeirra sem nýkomnir

voru í félagsskapinn, hvar í hann lýsti því

yfir, að felagið væri heimuglegt og mætti ekkert

berast út um það, og hinir tilvonandi meðlimir

yrðu því að binta sig þagnarheiti um allt það

er framfæri þangað til útgjört væri um hvort þeir

gengju í félagið, ef að því skyldi reka að þeir ekki

treystust að ganga st undir inn í félagið. Því

næst las forseti upp löginn og æskti síðan

svara meðlimanna um hvort þeir hefði nokkura

spurníngu fram að færa um skilning lag-

anna, kváðust þier Jón Hjaltalín og Páll Sigurðsson vera fúsir á að

ganga í félagið þegar. Eggert Sigfússon hafði ýmsar

athugasemdir fram að færa um hina bindandi stefnu

félagsins, en gekk þó í það



Bls. 2 (Lbs 486_4to, 0023v)


Því næst skilaði forseti gjaldkera félagsins þeim 20 rd

sem í Maímánuði höfðu verið lánaðir einum félags

manna móti 5% Rentu og voru vextir orðnir

af þeim 40 sk .

Gat forseti um breytíngu á nöfnum manna

og skoraði á hina nýju að hugsa um hin

uppteknu nöfn sín og gáfu þeir sér þau

þegar. - Enn fremur gaf forseti þeirrar sam-

þykktar fundanna að menn ekki reyktu á fund-

unum.

Því næst las forseti upp kvæðis útleggíngu

eptir E. Magnússon á kvæði eptir Runeberg,

sem heitir, "Við en Källa", <ref group="sk"> "Vid en källa" eftir Johan Ludvig Runeberg (1804-1877). Hér á "Projekt Runeberg" </ref> og fluttu þakklæti

felagsins fyrir. Tilfært í bréfaskrá undir No 12.

Því næst voru á skriflegum seðlum dregin spursmál

og þau rædd.

Því næst var samþykkt með 12 atkv gegn 2 að allir

félagar skyldu senda inn félaginu ritaðar æfisogur sínar

hver eptir sínum eigin smekk og hæfilegleikum.

Bar O. Finsen upp þá uppástúngu að fundi

skyldi halda aðeins til kl. 10. á kvöldin en hann



Bls. 3 (Lbs 486_4to, 0024r)


tók þessa uppástúngu aptur eptir skammar umræður.

Þá stakk hinn sami upp á því, að ganga mætti af

fundi hver er vildi eptir kl. 9 1/2 á kvöldin, eða til

vara kl. 10. og var hin firri feld með 14. atkv. móti 1 en

hin seinni o með öllum atkvæðum og uppástúngu

manns líka.

Fundi slitið.

H.E.Helgesen E. Magnússon



  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Eiríkur
  • Dagsetning: XX.XX.2011

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar