Fundur 13.feb., 1863

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 7. desember 2011 kl. 12:22 eftir Eirikurv (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. desember 2011 kl. 12:22 eftir Eirikurv (spjall | framlög) (Ný síða: Ár 1863, 13 febrúar var fundur haldinn í kvöldfélaginu og voru í fundarbyrjun 14 félagsmenn mættir. Í forföllum forseta stjórnaði varaforseti fundinum 1 Hjelt Sigurður m...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigationJump to search

Ár 1863, 13 febrúar var fundur haldinn í kvöldfélaginu

og voru í fundarbyrjun 14 félagsmenn mættir.

Í forföllum forseta stjórnaði varaforseti fundinum

1 Hjelt Sigurður málari Guðmundsson áfram ræðum


um Íngólf Arnarson. varð margrætt um málefni þetta

var ályktaað að kjósa nefnd manna til að koma mál-

efninu í hreifingu meðal þjóðarinnar, en nefndar

kosningu þessari frestað til næsta fundar.

Árni skrifari Gíslason, frummælandi í kappræðuefninu

um hljóðstafi og hendingar í íslenzkum kveðskap, tók

þá til máls, og ræddi um þetta málefni. Honum andmæltu

Matthías Jockumsson og Sveinn Skúlasin, en Matthías

einn tók til máls, hinn kvaðst mundu tala á næsta fundi.

G. Magnússon stakk upp á, að Matthías á næsta fundi kæmi

með 4 bögur án höfuðstafa og stuðla, svo að sæist hvort ekki

færi nógu vel á því; skorði þá forseti á hann, en hinn lofaði

engu, en gaf góðar vonir. Um þetta málefni var margrætt

og þótti góð skemmtun; en þaðr ið það varð ei fullrætt var frekari um

ræðum til næsta fundar.

Til næsta fundar var enfremur ákveðið fundarefni, að Þorsteinn

Jónsson hjeldi kappræði um að maðurinn væri dýr í

öllum skilningi orðsins, andmælendur væri Helgi

Helgasen og Hallgrímur Sveinsson

Fundi slitið

Jón Árnason / Á. Gíslason