Fundur 18.okt., 1862

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
Fundarbók, 1861-66.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.


  • Lykilorð:
  • Umræðuefni:
  • Nöfn tilgreind: XXX

Texti


Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0041r)


Ár 1862, laugardaginn hinn 18 Október var fundur haldinn

í félaginu, voru allir á fundi nema Matthías Jochumson

Jónas Jónasson og factor Oli Finsen; enfremur voru á

fundinum mættir skólakennararnir Jón Þorkelsson

og Jónas Guðmundsson, candidat Sveinn Skúlason og

student Petur Guðjohnsen og Stud. Med, Þorst. Jónsson sem á síðasta fundi var ákveðið

bjóða inn í félagið. Las forseti upp fyrir þeim lög þar

og skýrði þeim frá helztu gjörðum þess; geingu þeir síðan

inn í félagið, og skrifuðu nöfn sín undir lögin; voru

þeir sagðir velkomnir, og hjelt forseti ræðu og lýsti

gleði sinni yfir að þeir væru komnir í félagið, og von-

aðist eptir að þeir mundu efla krapta þess.

Síðan var rætt um blótveizlu þar síðasta fundar var, er ákveðið var að talað

yrði um, og var kosin nefnd sett til að sjá um haustblót og í

hana valdir gjaldkeri J. Hjaltalín og Hallgrímur Sveinsson Sveinn Skúlason.

Þá voru dregnir nokkrir seðlar, og rædd efni þau er á þá

voru rituð; hljóðuðu þau öll um mat og drykk og glaðværðir því veizla

var í vændum

Fundi slitið

H.E.Helgesen A. Gíslason



  • Skráð af: Eiríkur Valdimarsson
  • Dagsetning: 01.2013

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tenglar