Fundur 21.apr., 1871

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
Fundarbók, 1871-74.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.


  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: XXX

Texti

Bls. 1 (Lbs 488 4to, 0006v)

Fundur 21. Apríl.

Framhald umræðu um kosti og ókosti

Islands í samanburði við önnur lönd.

Frummælandi G. Magnússon: Samanburðr

þessi fór aðra <unclear>nefni</unclear> en jeg hafði ætlast til. Jeg nefndi

hringstöðu Islands á hnettinum til að sýna að öll

lönd á þeirri hringstoðu væri óbyggileg og svo væri og um

Island. Eins og Island er nú þá er það meira en

meðalhraf allra landa. Það er næstum ómögu

legt fyrir annað en Svinerie að geta komið fram

á almennil. hátt. Kostir einhver lands eru

hve byggil. það sje. Jarðarhnöttinn deilist á ýmsa

parta sinn óbyggil, suma illbyggil, suma vel

byggil. Mjer finnst af þessum níu beltum er jeg kalla

(<unclear>hún</unclear> stig í hverju beti) 4-6. belti eitt byggileg.


Bls. 2 (Lbs 488 4to, 0007r)

Kostir Ísl. eru fiskiafli, sauðbeti, fiskivötn, varp

lax, laust við styrjaldir. Ókostir: vantar korn

aldini, skóga, málma, hæfilegt. til mikillar

byggðar (1800 # mílum eru yfir 400 hrein öræfi).

Um daginn sagði Halld. Guðm. að hnattlegið væri

eigi áreiðanl. Þetta vissi eg áður en gleymdi að geta

um það eða áleit það óþarft í eins stórkostl. yfirlit

eins og hett mitt var. Hann talað um auðlegð í sjónum

hún er óneitanl. mikil og opt dýrkeypt. Eiríkur Briem

talar um rit Eggerts, en jeg þekki svo mikið til þeirra

að það er eigi honum að þakka að Islendingar voru eigi

fluttir til Jótlands. Hann sagði að mannfelli hefði

orðið annarsstaðar líka, en þeir eru of hryggil. til að bera

í bætifláka fyrir þau. Svo segir hann að afrakstur

hjer sje eins mikill og annars staðar. En hvar græða

menn 22.000 dali á 2 tímum eins og í Khöfn. (einhver

grosseri nefndur). Sigurður málari talar um mör-

land og fjallagrös og svo. frv. og að bæta landið en jökl-

arnir verða þó aldrei gjörðir byggilegir. Sigurðr Vigf.

þótti mjer tala skynsamlegast. Landið var betra fyrrum og þá

var landrymið meira og s.frv.

Sig. Guðm. Þegar frummælandi undantekur

Skotland og þesshátta lönd svara jeg honum eigi.

Gísli Magn: Jeg taldi Skotland með Englandi.

Snorri Jónsson: (fylgiskjal).

H.E.Helgesen. Mjer kom það vel að sjá að menn

hafa enn tilfinning fyrir hinni köldu móður

vorri, en allt fyrir það get ég eigi kastað steini

á frummælanda fyrir þar þótt hann reyni til

að útiloka þessa tilfinningu, sem hann vissul. hefr

eins heita eins og hver okkar; jeg furða mig

ekkert á því sem Snorri sagði og eigi heldr því sem

frummælandi sagði, og játa það þratt fyrir tilf.

mína fyrir Islandi að betra sje fyrir ymsa menn

annarsstaðar en hjer t.d. studeraða menn. Þar á

móti er það betur lagað fyrir fiskimenn en marga

flest önnur lönd. En að segja þar fyrir að það


Bls. 3 (Lbs 488 4to, 0007v)

sje velbyggil. getur eigi verið rjett. En

menntamennirnir sem eiga <add>hjálpa til</add> að gjöra land-

ið byggilegra þeir vita af sælu suma líka

annarsstaðar fram yfir það sem þeir eiga hjér

og sýna því föðurlandsást sína í því að

taka hin litlu kjör hjer fram yfir hin betri

erlendis. Jeg imynda mjer að hin ósjalfráða

tilfinning hafi dregið frummælanda hingað

til hins <unclear>merrka</unclear> góða fyrir landið.

G. Magnússon: Jeg hafði tekið óhæfil. opt fram í.

en jeg vil geta þess viðvíkjandi því að frum

Snorri sagði að flestir kæmu til Isl. til með exsamine

Árin sem jeg var ytra deyja eða koma inn

exameuslausir 24. Forseti sagði að Islandi væir

eigi vel byggil. fyrir menntamenn, en það er eigi

heldur vel byggil. fyrir þá menn sem vilja verða rík-

ir menn.

Sigurð Vigfs: Industri er ekkert í landi hjer;

og fyrir hvern mann sem er í góðri stöðu í

öðrum londum er eigi annað en vitleysa að fara

hingað. Jeg iðrast enn eptir að fara frá Höfn

því þar voru mínir sælustu dagar.

G e f n.

Frumælandi G. Magnussoon. Bókin

er undarl. sambland af efni og vitleysu *


[ATH - vantar]


Bls. 4 (Lbs 488 4to, 0008r)


Bls. 5 (Lbs 488 4to, 0008v)










  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Eiríkur, olga (Wiki)
  • Dagsetning: 2013

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar