Fundur 26.jan., 1861

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
Fundarbók, 1861-66.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.


---

Texti:


Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0012r)

Ár 1861, laugardaginn hinn 26 Januar var fundur haldinn


í hinu svo kallaða leikfélagi andans <ref group="sk">Orðið leikfélag hefur örlítið aðra merkingu á þessum tíma. Það getur merkt hvort tveggja íþróttafélag og félagsskapur leikara. Hins vegar hafði orðið íþrótt líka margfalda merkingu og gat verið notað um iðkun listgreina. Ekki er ljóst hvort nafn félagsins hafi verið meðvitaður orðaleikur af einhverju tagi. Nafninu var breytt á fundi þann 29. nóvember 1862 í Kvöldfélagið. </ref> , sem stofnað var á


sama fundi af þeim er ofannefnt ár léku "komediu" í Reykjavík.
 <ref group="sk">Sjá t.d.: Þjóðólfur, 12. árg. 13-14 tbl. bls. 49-51 og Þjóðólfur 13 árg. 11 tbl bls. 48, Þar sem skrifað er um gleðileiki í Reykjavík og fjárgjöf leikenda til prestaskólans. </ref>

Lög félagsins voru lesin upp og samþykkt af felagsmönnum


voru kosnir vara embættismenn og varaembættismenn félags-


ins og féllu þar kosningar þannig:


Til forseta var kosinn H.E. Helgesen með 7 atkvæðum


- skrifara - - E. Magnússon - 5 -


- gjaldkera - - St. Steinsen - 7 -


- varaforseta - Þ. Jonsson - 5 -


- varaskrifara - Isleifur Gislason - 8 -


- varagjaldkera L. A. Knudsen - 4 -


Að aflokinni embættismenna kosningu hélt forseti ræðu


til felagsmanna og tók sér í lagi fram samlyndi og ötullleika félaga


í að starfa að augnamiði félagsins. Voru síðan lögð fram


árstillög félaga og veitti gjaldkeri þeim viðtöku. <ref group="sk">Félagarnir styrktu prestaskólann með 55 rd. framlagi um þetta leyti, en það hefur sennilega verið ágóði af leiksýningunum frekar en af félagsgjöldum, þar sem félagsgjöld voru 1 rd. (sbr. 13. gr. félagslaga) Sjá: Þjóðólfur 13 árg. 11 tbl bls. 48 </ref> Þess ber að 


geta að 3 af þeim er upprunalega var ætlast til, að yrðu í félaginu


mættu ekki á fundi og var stungið uppá mönnum til að tala


við menn þessa og búa þá undir inntöku í félagið sam


§ 19 í lögum félagsins


Forseti gat þess að sér hefði ekki borist nein ritgjörð




Bls. 2 (Lbs 486_4to, 0012v)

en hann byggist við að næsta fundi mundi berast eitthvað


í félagsins þarfir. <ref group="sk">Hér má sjá eitthvað af ritgerðum félagsins
 </ref>

Síðan var fundi slitið.


H.E.Helgesen / E. Magnússon

















  • Skráð af: Eiríkur Valdimarsson
  • Dagsetning: 12.2012

Sjá einnig

Lög félagsins

Skýringar

<references group="sk" />

Tenglar