Fundur 26.nóv., 1869

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
Fundarbók, 1866-71.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.


  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: XXX

Texti

Bls. 1 (Lbs 487 4to, 0075r)


2. kveldfundur 26 nóvember

Forseti las upp lög fjelagsins og hjelt ræðu til

hinna nýkomnu fjelagslima, er á fundi voru, en

leit til þess að skýra þeim frá eðli og tilgangi

fjelagsins og kvetja þá til að reynast góða fjelags-

limi.

Síðan var tekið að kjósa nefnd til að

kjósavelja spurningar og var ályktað að velja 5 manna

nefnd þessir menn voru kosnir: H E Helgesen

Haldor Guðmundsson Eiríkur Briem Skúli Magn-

usson og Jón Ólafsson.

Þar er nú ekki var meira til umræðu

voru menn látnir draga miða.

1 spurn. "Hví eru steinvörður á ýmsum stöðum hjer

á landi kallaðar kellingar? og hvenær hófust fyrir

Bls. 2 (Lbs 487 4to, 0075v)


klámvísur þær sem í þær eru lagðar"? Forseti

svaraði svaraði spurningunni og honum

það líklegt að þær dægi nafn sitt af hemp

því þær líkjust hempuklæddri skuplaðri

kellingu og hjelt hann að einhver mundi

hafa glæpst á þessari líkingu í þoku og

og lagt svo í hana níðvísu af gremju. -

2. Spurning Hvort hafa tómthúsmenn í

Reykjavík meiri skaða á kaffi eða

Skuli Magns. brennivins drykkju? Hann hjelt að

draga mundi úr kaffidrykkjukostnaði

ef menn gerðu sem sumir sveitamenn hver gjöra

að skiptast á um sama molann, en þó varð

það ofaná að það væri ókljúfandi kostnaður og hann

stakk upp á að nota innlendar drykkurtir

en aptur hrósaði hann brennivíni sagði það

ódýrara og betra; hann reyknaði kostnað bæði

kaffi og brennivínsdrykkju; en um þann

reikning varð mikill ágreiningur.

Forseti: kvaðst best geta dæmt um þetta því

hann hataði hvortveggja og sagði hvortveggja

gott í hófi.

3. spurn Hvað er að segja um klubbana og hvort

eru þeir til gagns eða skaða? Jakob Pálsson

aleit klubba skaðl.

Bls. 3 (Lbs 487 4to, 0076r)

Skuli Magnuss. sagði að betra væri að drekka

á klubbi heima og sagði að einhversstaðar yrðu

drykkjumenn að hafa hæli. Hann sagði líka að

klubbar vendu af gestanauð. Enfremur sagði

hann að menn hefðu best tækifæri til að koma

saman á veitihúsum og væri það þarfl. og gott

Þeir væru því þarfir og góðir

Jón Ólafsson var á annarri skoðun og reif niður allt

það er Skuli hafði sagt; niðurstaðan varð að

þeir væru vondir og skaðsaml. báðir skildu þeir

orðið klub sama, sem veitihús.

4. spurning: Bryjólfr bókbindari: "er betra að draga

hvítan eða svartan miða.

5. spurn. Torfi Magnusson "Sittu við eldin sje þjer

langt" Þótti spurningin of</add>pvetisk og of há f'sig

en sagði eldurinn vekti margar hugleiðingar

Á næsta fundi verður talað um <unclear>verkfana</unclear>

spurningarnar.

Fundi slitið.

HEHelgesen Eldjárn




  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af: Eiríkur, olga (Wiki)
  • Dagsetning: 01.2013

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar