Fundur 30.mar., 1861

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
Fundarbók, 1861-66.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.



Texti:


Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0016r)

Ar 1861, laugardaginn hinn 30. marz, var fundur

haldinn í félaginu. Allir á fundi, nema Þ. Egilssen

Brandur Tómasson, J. Björnsson, sem höfðu tilkynnt

forföll sín.

1. var lesin upp ritgjörð frá Arna s Gíslasyni um æsku-

var titill hennar "Æskufoldin mín."

2. Disputeraði forseti út af hinni sönnu fegurð.

Opponentes ordinarii <ref group="sk> Opponentes ordinarii=Andmælendur </ref> voru skrifari og LysingurS. Málari , Decanus <ref group="sk> Decanus= Umsjónarmaður, umræðustjóri. "Decanus" hét sá sem hafði umsjón með hópi stúdenta (yfirleitt 12 í senn) í Kaupmannahafnarháskóla. (Decanus: lat. "tíu manna foringi." Af þessum stofni er enska orðið "dean": rektor, klerkur.) Sjá t.d. "Ævisaga Sveins læknis Pálssonar" Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn.(10.árg.1929) Bls. 14 </ref>

var Robespierre Ó. Finsen. <ref group="sk> Svo virðist sem dulnefnin hafi ekki varað lengi og farið hafi verið yfir fundargerðir til að setja inn réttu nöfnin. </ref>

3. Var kosið efni fyrir skrifara að ræða um á næsta fundi;

hvað að sýna hver væri skáld og hver ekki.

Fundi slitið.

H.E.Helgesen E. Magnússon



  • Skráð af: Eiríkur Valdimarsson
  • Dagsetning: 12.2012

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar