Fundur 7.des., 1865

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
Fundarbók, 1861-66.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.


  • Lykilorð:
  • Efni:
  • Nöfn tilgreind: XXX

Texti


Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0106r)


Sama ár var fundur haldinn 7. des. Árni

Gíslason frummælandi spurningarinnar

um: "Hvað hefur Rvík sjer til ágætis fram yfir

sveitalífið"? Hann lýsti fyrst með fögrum

orðum náttúrufegurð sveitalífsins (fram yfir

Rvíkurlífið, bæði sumar og vetur. Varð það

aðal-skoðun hans að ágæti Reykjavíkur, (þó

margt kunni að vera) standi mjög að baki drott-

ins handaverka, því þó þau sje ar gömul og ekki

"móðnis" þá eru þau svo "salid" og "suffisant"

at det er magestant. Þó tók hann fram

hyggingarprýði bæjarins, barnaskólans, lærða-

skólans og presta, samt lækna skólan, sem

allir er til lífgunar lífinu (ef þeir fá ekki

lífsýki, sagði Sigurðu málari!); þá taldi hann

Forngripasafnið, dansleiki ti. t.d. gleðileiki in.



Bls. 2 (Lbs 486_4to, 0106v)


Þá er prentsmiðjan, forstöðumaður Einar

Þórðarson, þá koma yfirvöld og embættis-

menn sem um vefur Rvík dýrð og vegsemt

ásamt vindmillunum báðum auk bóka-

safna og bókaeigna. Loks er Kvöldfjelagið

sjálft, sem er sprottið af góðu fræi og vex

uns það verður að stórri eik, og fuglar

himinsins koma og byggja sjer hreiður

í greinum hennar.

Sveinn stóð þá upp og fann sjer upp

smáholur í sveitalífslýsingar uppúr-

sjer tilraunargjörð frumælanda. Dalbú-

arnir fara á hne fyrir þeim sem hjer eru

vegna "af því þá skortir skilninginn". Sömul-

fann Sveinn holur á Rvíkrlýsingunni og vildi

gjöra ídealísera Rvík með rjóma og thevatni.

Þá stóð upp Gísli Magnússon. Fann hann

það til að frummæl. hefði fegrað sveitina um

of. Okkur (Island.) ferst einsog fleirum að

"hverjum þykir sinn fugl fagur", við víkjandi

Isl. í samanburði við Isl Danmörk. Því, segir

Gísli, Danmörk er fegra land en Island.

Náttúran hjer er margbreytnari og stórkostlegri.

Kirkjuferðir og gestrisni í sveit og Rvík

er sama þegar öllu er á botnin hvolft

Torfi fær ekki að vera, því hann er fylli-

svín. Síðan stóð Matthías upp og sagði

að ef mál þetta væri útlistað skáldlega,



Bls. 3 (Lbs 486_4to, 0107r)


(einsog frumæl) þá mundi nátturulífið

verða æðra bæjarlífinu hvað fegurð snertir.

Frumæl stóð þá upp og mælti ymisl. til

sönnunar sínu máli

Fundi slitið

Matth Jochumsson



  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Eiríkur
  • Dagsetning: XX.XX.2011

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar