Fundur 8.okt., 1861

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search
Fundarbók, 1861-66.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.



Texti:


Bls. 1 (Lbs 486_4to, 0021r)


Félagsins annað ár 8 oct. 1861

Ár 1861, þriðjudaginn hinn 8. Oct. kl. 8 1/2 e. m. var fundur

haldinn í félaginu, og tilkynnti forseti félagsins frá

fyrra ári að nú væri félagsins fundarhald ha byrjað

að nýju samkvæmt logum félagsins og beiddi hann

menn þegar að ganga til atkvæða um nýjar

forset embættismanna kosníngar í félaginu

Var þá gengið til kosninga á embættismonn

um, og gat hinn forseti þess áður að einn

af meðlimum félagsins, M. Jochumsson

hefði breflega afsakað sig frá fundar

móti og var hann undanþeginn sekt

samkvæmt lögunum.

Voru því næst kosnir til Embættismanna

þessir.

A. til O reglulegra embætismanna:

1. til Forseta

cand. theol. H. E. Helgesen með 11 atkv



Bls. 2 (Lbs 486_4to, 0021v)


2. til skrifara

Cand theol. E. Magnússon með 8 atkv.

3. til gjaldkera

Stud. Med. & Chir. Þ. Jónsson með 5 atkv.

B. til varaembættismanna

1. til varaforseta

Stud Jón Arnason með 10 atkv.

2. til varaskrifara

stud. theol Ísl. Gíslason með 6 atkv.

3. til varagjaldkera

Politi Arni Gíslason með 3 atkv.

Forseti hélt síðan ræðu til félagsmanna

hvar í hann tók fram tilgang félagsins og

krapta þess til að koma tilgangi sín-

um fram, enn fremur gat hann þess, að



Bls. 3 (Lbs 486_4to, 0022r)


2 meðlimir, prestur séra Jakob Bjarnason

og cand. theol. St. Steinssen hefði sost eptir

að verða með bréf skrif legir með limir felagsins. Gat hann

því næst um efnahag felagsins og afhenti

hann bók yfir hann, ásamt sjóði þess,

gjaldkera í hendur, og átti þá félagið í sjóði

23 rd 2sk, en útistandandi skuldir við fé-

lagið voru 13sk.

Félagar, þeir er á fundi voru greiddu því

næst árs tillög sín með 1 rd hver.

Var því næst afráðið að bjóða þeim

prestaskólastudentunum P. Sigurðssyni, J. Hjaltalín og E. Sigfússyni inn í félagið

og skyldi skrifari bjóða þeim fyrsta, gjald-

keri hinum öðrum og J. Jonassen hinum

þriðja.

Forseti let því næst ganga til atkvæða



Bls. 4 (Lbs 486_4to, 0022r)


um það hvort geta skyldi þess í fundarbók fé-

lagsins, að skrifari hafði haldið ræðu hvar

í hann lýsti fjörugri hjartanlegri gleði sinni yfir því að

fundarhald félagsins væri nú byrjað að nýju

og að hann þó hann yrði fjélaginu fjarlægari

framvegis mundi líta í anda með gleði til

þeirra manna er skyldu svo góðum og þjóð-

legan tilgang, sem þann er félaginu færi

fram á. <ref group="sk"> Eiríkur Magnússon var á leið til Englands, þar sem hann yrði bókavörður í Cambridge og mikilvægur tengill við breska menntamenn og áhugamenn um íslenska sögu. </ref> - og var þessi uppastunga forseta

samþykkt. - Boðaður var fundur kl. 8 e.m. næsta laugardag

Því næst var fundi slitið eptir að sam-

þykkt hafði verið með atkvæðafjölda, að

félagar forðuðust framvegis að reykja

vindla á fundum felagsins.

H.E.Helgesen E. Magnússon



  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Eiríkur
  • Dagsetning: XX.XX.2011

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar