Ritgerð (SG-04-1) Ætlunar verk S G 1862

Úr Sigurdurmalari
Jump to navigationJump to search

  • Lykilorð:
  • Efni: Ætlunarverk Sigurðar 1862.
  • Nöfn tilgreind:

Texti:

bls. 1

Ætlunar verk S G 1862. Samið

sem hann hefir, og ætlar að spila í undir niðri og að fram kvæma

og gert verði.

1a gera kort af Þíngvelli, og mindir, sem þarf því viðkomandi.

b) og ríta um öll örnefni þar og búða skipun og man virki x

c) beraaðra þíng staði sam ann við þíngvöll.

d) um við hald þíngvallar, og minnis varða sem þar ættu að vera.

hvernig á að príða hann hæfi lega


2 um minnis varða Ingólfs, og hvernig á að príða Reykjavík

sem vort elsta höfuð ból, og um þjóðlega þíðíng hennar. <ref group="sk"> Á Kvöldfélagsfundi 13. febrúar 1863 ræðir Sigurður um minnisvarðann og ákveðið er að kjósa nefnd innan félagsins "til að koma málefninu í hreifingu meðal þjóðarinnar." Kosið var í nefndina á fundinum 20. feb. 1863 og Sigurður varð formaður hennar. Innt var eftir störfum nefndarinnar á fundum ssíðar á árinu 8. maí og 30. maí Grein um málið birtist í Þjóðólfi 12. ágúst 1864: Þjóðólfur, 12.8.1864, bls. 159-162 Sigurður nefnir greinina í bréfi til Jóns Sigurðssonar stuttu síðar, í september. </ref>


3 um þjóðlegt alþingis hús og hvernig þaðá að vera?


4 að stofna þjóð safn eður forn gripa safn til 1800

þar eiga að vera allra merkra manna mindir etc X

X vopn, hús bún aður etc.


5 að koma á röð af kénnara mindum í skálanum. x


6 koma á leikhúsí, ): fastrri Scenu (og föstum garð ærabe).<ref>Væntanlega garderobe:(dk) búnings- og förðunarherbergi í leikhúsi</ref> Þegar færi géfst


7 lagfæra kvenn búningin og koma á þeim gamla x

þjóð búníng um alt land og gera uppdrætti.

því við kom andi <ref group="sk"> 'I bréfi til Steingríms Thorsteinssonar þann 21. sept. 1860 (SG-02-216) hafði Sigurður skrifað að "með búnínginn geingur allvel" </ref>


a 8 skrifa um karlman búnínga til 1400 eða til 1800. x með mindum <ref group="sk"> Sigurður merkir við með "x" væntanlega þar sem hann var búinn með ætlunarverkið. Ritgerðina má sjá hér Um Íslendska karlmanna búninga til 1400. </ref>

b 9 skrifa um kvenn búnínga til 1400 eða til 1800. x


c 10 skrifa um vopn til 1600 x með mindum

d 11 skrifa um bigg íngar á ollum öldum með mindum

e 12 skrifa um Íslendska kúnst frá upphafi. x

athuga semdir um legsteina hvernig þeir eiga að vera þjóðlegir

X umverk færi als konar forn

f 13 um skip, safn um öll nöfn i skipi og ítra lag.

x að safna rúna stein um og legstein um með mindum

um þjoð legt skémti hús í Rvk. hvernig það á að príða til

bráða byrðar

NB. 7 búið að nokkru leiti sumt eða komið á stað

böð og sund dokk listi garðar, vasrenu

á til bæarins <ref group="sk"> dokkir: dæld eða hvilft í landslagi þar sem safnast vatn. Sjá einnig: SG-05-12 Hverjar eiga að vera skemmtanir í Rv.| bls. 2 </ref>

Guð ræður enn mennirnir hugsa.


bls. 2

NB að safna öllum hlutum, og mindum

er snerta sögu Íslands, eða sem géta

seirna átt inni sögu Íslands með mindum

eða orða bækur með mindum. eða norræn

antiqvitet með mindum [∫] því allir

eiga að sjá að bókleg lísing þessara

fir greindu hluta er alveg ónóg, og

með öllu ó skiljan leg ogþað ættu menn

fyrir laungu að hafa séð.

til þess að safna þessu þarf lángann

tíma, áður enn menn géta feingið úr

því heild, og þarf því sem first að

safna því líkt og því skriflega safni

til sögu Íslands. sem hefir alveg sama

til gáng, og gérir alveg sama gagn í

sinni tegund, þessi söfn eiga að filgjast að

því kvörugt má án annars vera, ef

rétt er að gjætt. og von um bráðar

kom umst vér að þeirri raun eins og allar

aðrar ment aðar þjóðir, þótt Íslenzkir

vísinda menn hafi ekki hingað til

alment gáð að því


[Innsetningarmerki á vinstri spássíu og á við innsetningarmerki í fimmtu línu:]

[∫] sem þarf að búa til lík þeim Grísku og Latínsku


  • Skráð af: Edda Björnsdóttir
  • Dagsetning: Júli 2013

Sjá einnig

Skýringar

<references group="sk" />

Tilvísanir

<references />

Tenglar