Skjöl (Lbs489,4to 251v)

Úr Sigurdurmalari
Fara í flakkFara í leit

  • Efni: Álit skrifara á uppástungum Eggerts Brím varðandi forngripasafnið. Þeir eru sammála honum en leggja áherslu á að vekja áhuga almennings á safninu með því að skrifa greinar í blöð og senda bréf á eiginn kostnað.

Texti

nú leyfa oss að taka það fram í eptirfylgjandi

atriðum:

1. Vér álítum nauðsýnlegt, að félag vort hlutist

til um það, að sem fyrst verði ritaðar stuttar

greinar í blöðin, Þjóðólf og Norðanfara, til

þess að örfa áhuga landsmanna á forn-

gripasafninu.

2. Að félagið láti semja, prenta á sinn kostnað,

og sendi út um landið áskorun í boðsbréfs

formi til samskota handa forngripasafninu.

3. Að félagið láti prenta á sinn kostnað, sem

viðaukablað við Þjóðólf, hálfa örk með petit-

letri, er skýri almenningi frá gjöfum þeim eða

gripum, sem sendir hafa verið til forngripa-

safnsins, og sem engin skýrsla á prenti

er ennþá komin um. Þetta atriði álítum vér

vera lángmest umvarðandi.

Reykjavík , 28. Nóvembr. 1866

Sigurður Guðmundsson Jón Árnason Páll Melsteð










  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Júlíana Þ. Magnúsdóttir
  • Dagsetning: 2024

  • Sjá einnig:
  • Skýringar:
  • Tilvísanir:
  • Hlekkir: