Vasabók (SG-03-3)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 31. maí 2013 kl. 08:56 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. maí 2013 kl. 08:56 eftir Olga (spjall | framlög)
Jump to navigationJump to search

  • Lýsing: Vasabók.

Innbundin spjöld og kjölur klædd grænum striga. 11 x 16,2 cm. Fremst í bókinni stendur skrifað með hendi Sigurðar ,,Vasabók frá 1861". Bókin er ekki fullnýtt. Meginefni hennar er texti en þar er einnig að finna myndir bæði sjálfstæðar og til skýringar á texta. Meginefni texta: Ýmislegt tengt rannsóknum Sigurðar á alþingisstaðnum á Þingvöllum. Eins og athugasemdir um staðhætti og örnefni og mál á ýmsum fjarlægðum þar sögur og sagnir frá Þingvöllum. Frásagnir nafngreindra manna um atriði, er snerta Þingvöll. Lýsingar á búðarrústum. Uppdrættir af staðnum fylgja og ýmsar teikningar af landslagi og rústum á þingsvæðinu. Athugasemdir um búningasögn flestar byggðar á frásögn nafngreindra aðila. Smáræði um ílát og verkfæri, með skýringarmyndum. Tilvitnanir í rit þar sem nöfn á húshlutum koma fyrir og frásagnir fólks um húsakost m.a. skála. Þeim hugleiðingum fylgja grunnteikningar. Listi yfir gamla muni, sem Sigurður hefur heyrt af og lausafundi. Annar listi yfir nöfn á skipshlutum. Af teikningum ber fyrst að nefa blómamyndir, sumar fagurlega vatnslitaðar og munsturteikningar byggðar á blómum. Ýmsa uppdrætti tengda athugunum á Þingvöllum. Landslagsmyndir - leikmyndir? Myndir af dómkirkjunni og norskum stafkirkjum, rúnasteinum og kvensilfri. Í raun skiptir þetta bókinni í þrjá hluta:

1. Teikningar af blómum og munsturteikningar.

2. Athuganir á Þingvöllum og alþingisstaðnum.

3. Búningasögu, húsasögu og forngripaathugunum.

Í bókinni eru 3 lausir miðar. Á þeim fyrsta er uppdregið blómamunstur, síðan er minnismiði og síðast blaðsnepill.

Heimild: Þjóðminjasafn Íslands (Inga Lára Baldvinsdóttir)


  • Lykilorð:
  • Efni:



  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir:
  • Skönnuð mynd:Sarpur

  • Skráð af:: Edda
  • Dagsetning: 2013

  • Sjá einnig:
  • Skýringar:

<references group="sk" />

  • Tilvísanir:

<references />

  • Hlekkir: