Verkefni (Lbs489,4to 27v-28r)

Úr Sigurdurmalari
Fara í flakkFara í leit

  • Efni: Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)

Texti

24. Hvað mælir með að hafa alþingi Íslendinga í Reykjavík? Sv.Sk.

25. Hvað kemur til að landslýðurinn haltast við Reykjavík?

26. Hver nauðsyn er á því að hafa spítala í hverjum landsfjórð-

ungi?

27. Hvernig stendur á því, að ýmis þarfleg fyrirbæri útlendra manna hjer á

landi, er að framförum lúta, bera engan svo lítinn ávöxt?

28. Hverja kosti og ókosti hefir leikurinn Kjartan og Guðrún eptir ólæsilegt

Öhlenschläger. Mattias Jochumsen

29. Að sýna ganginn í einhverju leikriti eptir Shakespeare? M.Joch.

30. Að sýna ganginn í forngrískum sorgarleik? Gísli Maagnússon

31. Að sýna ganginn í einhverjum fornum grískum eða róm-

verskum gleðileik. Gísli Magnússon

32. Að sýna mismuninn á sorgarleikjum Forngrikkja og hinna

nýjari þjóða?

33. Að bera saman þjóðerni og lunderni Svía og Dana? Fritz Zeuthen

34. Hvernig koma íslenskir sveitamenn fram í verzlun sinni?

35. Á fjelagið að gefa málefninu um Ingólfsvarða auga framvegis?

36. Um hegðun presta á Íslandi? Jón Hjaltalín

37. Hvaða áhrif hefir útvortisguðsdýrkanir á hugarfar manna og hegðan?

38. Um uppruna trúarbragðanna. Matthías Johumssen

39. Hvaða áhrif hafði Katólskan hjer á landi á samtíð sína og seinni aldir? Þorkell

40. Til hvers miðar fjelagskapur og hvað útheimtist til góðs fjelagskap-

ar?

41. Sambandið milli trúrækni og þunglyndis? Gunnar Gunnarson .

42. Að útlista, hvernig trúarofsi og trúleysi viki frá hinni rjettu trú.

43. Að skýra frá rafsegulþræðinum, og öðrum nýjum framförum

eðlisfræðinnar.

44. Er jambus íslenzkur bragliður og má við hafa hann í íslenzkum

kveðskap? Pjetur Guðmundsson

45. Að lýsa ýmsum háttum landsmanna og sjerstaklegum sveitabrag? Lárus Benid.

46. Hvaða áhrif hafa trúarbrögðin á þjóðfjelagið og ríkið ?og og hver er

nauðsyn til að hafa prestastjettina.

47. Hvernig hefir íslenzkan breyst síðan um 1200 og að hve miklu

leyti geta menn nú hagnýtt sjer forn orð í ræðu og riti Jón Þorkelsson

48. Hvað geta menn gjört til að efla stiptisbókasafnið?

49. Böl er búskapur (etc.?). Þetta á að sanna að satt sje.

50. Hverskonar böð höfðu fornmenn? Sigurður Guðmundsson

51. Eru ekki trúarbrögð óþörf en íslenzki faldurinn þó þarfur? Sigurðr Guðmundsson

52. Eðli og lækning gigtarinnar Zeuthen.


53. Því er bíld ur inum sjaldnar beitt í hinni nýju læknisfræði en í hinni

eldri.

54. Telst það ekki til hreinlyndis að gefa kunningja sínum á kjapt?

55. Hvernig stendur á, að mönnum á hverri öld sem er hættir við að lofa

fyrri aldirnar, en gjöra lítið úr sinni öld? Gísli Magnússon

56. Um djöfulinn, hans framfarir og apturfarir? Þorkell Bjarnason

57. Hvort er meira gagn að bunaðarfjelagi eða lestarfjelagi? Gunnar Gunnarsson

58. Á hverjum aldri þykir bóknám rjett byrjað? Og hvenær fyrst byrjandi og hvenær

síðast byrjandi? Gísli Magnússon.



















  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir: JÞM: Nöfn við spurningar stemma ekki við upphafstafi við sömu spurningar í fyrri fundargerðum- úthlutun frummælanda en ekki uppástungur?
  • Skönnuð mynd:

  • Skráð af:: Júlíana Þ. Magnúsdóttir
  • Dagsetning: 2024

  • Sjá einnig:
  • Skýringar:
  • Tilvísanir:
  • Hlekkir: