Verkefni (Lbs489,4to 31r)
- Handrit: 489 4to
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: 14. október, ártal vantar
- Ritari:
- Efni: Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)
- Lykilorð: umræðuefni, spurningar, drög
- Efni: Ýmsar spurningar, margar frá fyrri listum.
- Nöfn tilgreind: Ýmsar skammstafanir í spássíu.
Texti

Þann 14da oktober attum vér neðanskrifaðir nefndarmenn
fund með oss til að ræða og samþykkja umræðuefni handa
Kvöldfelaginu og kom oss saman um þessar spurningar:
P.M. 1. Snorri goði; hvaða þátt á hann i sögu Íslands og stjornarskip-
un þess.
Sv.Sk. 2. Um mansmenn í fornöld? (Sv. Sk)
M.Joch. 3. Hver áhrif hefur landslag og loptslag á lundarlag manna
skynbragð og háttsemi?
Sami 4. Hvað er myrkfælni, og af hverju kemur hú?n (J.B. E. Br.)
Sami 5. Er það satt sem Seneca segir að það sje gott fyrir ungan
mann að hafa kynnst það sem illt er?
P. Bl. 6. Hver nauðsyn er á að hafa spítala í hverjum landsfjórðung?
G.M. 7. Að sýna ganginn í grískum sorgarleik?
(Sami?) 8. Að sýna ganginn í rómverskum sorgarleik?
(Sami?) 9. Að sýna mismuninn
milli
á sorgarleikjum forngrikkja
og hinna nýju þjóða?
P.M. 10. Mismunur í lunderni Íslendinga og Dana?
H.G. 11. Að skýra frá nýjum ustu uppgötvunum í gagnfræði framförum í eðlisfræði?
Sv. Sk. 12. Að lýsa sérstaklegum sveitabrag? á einu eða fleiri héröðum.
J. A. 13. Böl er búskaður, hryggð er hjuskapur aumt er einlífi og
að öllu nokkuð.
S.G. 14. Hvernig böð höfðu fornmenn á Íslandi?
Fr. Z. 15. Hví er bíldinum sjaldnar beitt í hinni nýju læknisfræði
en í hinni eldri?
Egg. Br. 17. Hvað einkennir hverja öld í sögu Íslands 1, í bókmenntum
(P Melsteð?) 18. Hvað einkennir hverja öld í sögu Íslands 2, í stjórn og lögum.
S.G. 19. Hvað einkennir hverja öld í sögu Íslands 3. búningar og byggingar.
H.Guð. 20. Víðátta himinsins?
(sami?) 21. Dásemd náttúrunnar í stóru og smáu?
G.M.(?) 22. Hvað er einkenni vorrar aldar?
23. Sameiginleg einkenni kvenna?
P.M. 24. Hverjir hafa verið mestir málagarpar á íslandi frá dögum
Eyjúlfs Bölverkssonar til Jóns Guðmundssonar?
(Sami?) 25. Í hverju er móðurmáli voru mest ábótavant og hver ráð er til að
bæta það?
- Gæði handrits:
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:
- Skráð af:: Júlíana Þ. Magnúsdóttir
- Dagsetning: 2024
- Sjá einnig:
- Skýringar:
- Tilvísanir:
- Hlekkir: