Verkefni (Lbs489,4to 36r)
- Handrit: 489 4to
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: Engin
- Ritari:
- Efni: Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)
- Lykilorð: umræðuefni, spurningar, drög, þjóðmenning
- Efni: Menntun, bókmenntir, jafnréttismál, stjórnmál. Erfið skrift, mikið krot.
- Nöfn tilgreind: Ýmsar skammstafanir með blýanti sem sjást illa.
Texti

1.[krot: GM]Að kve miklu leyti er nauðsynlegt að kunna mathematik í hinum lærða skóla
og hvernig má kunna hana svo, að hún verði að til-
ætluðum notum?
2.
ólæsilegt
Formálinn í Gefn.
3. Með hverju verður bezt greitt fyrir samgöngum
um landið eptir því, sem nú á stendur?
4.[krot: ólæsilegt] Á fyrirlestra kennsla að vera, eða hvernig á að hafa henni?
5.[krot: AG] Hvernig verður drykkjuskap bezt útrýmt?
6. Að hvað miklu leyti er það rjett að láta aldur ráða
[krot: ólæsilegt]í embættaskipun? [krot: JOa et al?]
7. Hverskonar
ólæsilegt
bækur er þarfast að breiða út um
[krot: Borgf.]landið, og hvernig verður bezt farið að því?
8. Hvaða þýðingu hefur söngnám á Íslandi, og hvernig verður
[krot: SG.]það
ólæsilegt
elft
ur
og bætt
ur
?
9. Um titla og complíment og allskonar
ólæsilegt
brúkun á þeim.
10. Er
eigi
jafnmikil ástæða til að koma upp þjóðbúningi
kalla sem kvenna?
11. Er gagn að lestarfjelögum í sveitum, og hvernig verður
[krot: HEH?]þeim bezt fyrirkomið?
12. Væri eigi gagn að, að menn hefðu almennar skemmt-
[krot: Brynj.]anir í sveitum, og hvernig verður þeim bezt fyrir komið?
13. Er eigi[krot: Björn] rjett og nauðsynlegt að leggja tolla á munaðarvöru og hver aðferð væri til þess ?
14. Hvert nám er það, sem nema þarf til þess að geta heitið
[krot: GV?]vel menntaður?
15. Hafa kallar og konur eigi yfirhöfuð sömu hæfilegleika,
og ber þeim því eigi jafnrjetti til allra hluta?
16. Eru það veruleg not sem Íslendingar hafa af veru sinni
við háskólann í Höfn?
[krot: Jens]17. Hvað er hjátrú, og hvernig verður henni útrýmt?
18. Hverjum stöðum er skemmtilegust á Íslandi?
- Gæði handrits:
- Athugasemdir: Vantar nokkrar blaðsíður á milli.
- Skönnuð mynd:
- Skráð af:: Júlíana Þ. Magnúsdóttir
- Dagsetning: 2024
- Sjá einnig:
- Skýringar:
- Tilvísanir:
- Hlekkir: