Verkefni (Lbs489,4to 42r)
Úr Sigurdurmalari
Fara í flakkFara í leit
- Handrit: 489 4to
- Safn: Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Dagsetning: Engin
- Ritari:
- Efni: Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)
- Lykilorð: umræðuefni, spurningar, félagið, þjóðmenning, forngripasafnið
- Efni: Tillögur að umræðuefnum. Sanni tilgangur félagsins, bókasafn síra Benedikts á Hólum, klaustur og munkalíf á Íslandi, efling forngripasafnsins, "hver er hin hollasta tóbaksbrúkun?", skyldur góðs blaðamanns, "eiga fjelög og samtök við skaplyndi vor Íslendinga", lífsábyrgðarsjóður?
- Nöfn tilgreind: Ýmsar skammstafanir með blýanti sem sjást illa.
Texti

1.
Hver er hinn sanni tilgangur
kveldfjelagsins og hvernig hefir
honum verið fullnægt allt
til þessa? [Krot undir, dauft og ógreinilegt, virðist uppkast að sambærilegum texta en aðeins annað orðaval]
2.
Hver eru hin líklegustu ráð til
[krot undir: J.B.] þess, að hið merkilega bókasafn
síra Benedikts á Hólum eigi
eyðist nje tvístrist þegar hann deyr
heldur náist undir eitthvert opin-
bert bókasafn?
3.
[Krot: JxÞ] Að skýra frá klaustrum og munk-
lífi á Íslandi.
4.
Að segja helztu atriði úr prentsögu
Íslendinga
5.
[Krot:
S.G.
] Hvernig verður forngripasafnið
bezt eflt og varðveitt?
[Krot: HG]6.
Að hvað miklu leyti á mathematik að
kennast við latínuskólan?
[Krot: EBr]7.
Hver er hin hollasta tóbaksbrúkun?
- Gæði handrits:
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:
- Skráð af:: Júlíana Þ. Magnúsdóttir
- Dagsetning: 2024
- Sjá einnig:
- Skýringar:
- Tilvísanir:
- Hlekkir: