„Bréf (SG02-99)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
m (1 bréf (SG-02-99) færð á Bréf (SG02-99)) |
(Enginn munur)
|
Nýjasta útgáfa síðan 8. september 2015 kl. 18:56
- Handrit: SG02-99 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási
- Safn: Þjóðminjasafn Íslands
- Dagsetning: 6. jan. 1862
- Bréfritari: Ólafur Sigurðarson
- Staðsetning höfundar: Ási
- Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
- Staðsetning viðtakanda:
- Lykilorð: kvenbúningur
- Efni: „Möttullinn er nú fullsaumaður en Sigurður stendur sig ekki í öflun á pörum og hvetur Ólafur hann til dáða. Búningurinn er, að sögn, að breiðast út nyrðra.“ Sarpur, 2015
- Nöfn tilgreind: Gísli Brynjúlfsson, Böðvar í Ketu
Texti:
bls. 1
Ási 6. Janúar 1861
Kæri frændi!
Bréf þitt af 26 Marts f.á. þakka eg
nú þó seint sé. Þú lætur mig merkja
að þér líki allvel saumaskapur konu
minnar á bugnum sem hún sendi þér,
en litarhögun var ekki hægt að koma
vel fyrir á þeim uppdrætti, og vildi
hún fá hendfagri uppdrátt í því efni
en hann er; baldírað blað vildi hún
líka fá hjá þér í fyrra að gamni
sínu. Nú er hún búin með möttulinn
og beltið, og má því til á hverri hátíð
að nota gömul og hálfljót sylfurpör
vegna þess þú stendur þig svo ílla
með pörin nýju, sem ega þó að full-
komna stázið; uppí þau mun jeg hafa
sendt þér 10rdl með Gísla Brinjólfss.
í hitt hið fyrra, og aptur í fyrra 20rdl
með Böðvari í Ketu; þó skalt þú ekki
hugsa að þessir 30rdl ættu að skapa
verð þeirra heldur þú og smiðurinn.
koffur bað jeg þig líka um í fyrra, því
nú er kona mín að byrja að búa aðra
bls. 2
og þriðja og fjórða eru nú farnar að út-
vega sér vír og sefyrgarn. Jeg hef
þá ekki meira að skrifa þér í þetta
sinn, því jeg vona þú sýnir nú ein-
hverja rögg af þér fyrir páskana.
Þinn einl. frændi
Ó. Sigurðsson
- Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
- Dagsetning: 07.2011