„Bréf (SG02-39)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
m (1 bréf (SG-02-39) færð á Bréf (SG02-39)) |
||
(Ein millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |||
Lína 76: | Lína 76: | ||
[[Guðbrandur Vigfússon|Guðbrandr Vigfússon]] | [[Guðbrandur Vigfússon|Guðbrandr Vigfússon]] | ||
Nýjasta útgáfa síðan 12. september 2015 kl. 23:03
- Handrit: SG02-39 Bréf frá Guðbrandi Vigfússyni, prófessor, Oxford.
- Safn: Þjóðminjasafn Íslands
- Dagsetning: 30. maí 1859
- Bréfritari: Guðbrandur Vigfússon
- Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
- Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
- Staðsetning viðtakanda: Kaupmannahöfn
- Lykilorð: myndagerð, kvenréttindafélag, Munchen, kvenbúningur, skissur
- Efni: „Um myndagerð Sigurðar. Jafnframt segir Guðbrandur frá nýstofnuðu þýsku kvenréttindafélagi, sem hyggst hafna franskri tísku. Stingur G. uppá að Sigurður fari til Munchen og agiteri fyrir kvenbúningnum. Blýantsskissur eftir S. eru aftan á bréfin.“ Sarpur, 2015
- Nöfn tilgreind: Konrad van Maurer, Arnljótur Ólafsson?
Texti:
Kmhöfn 30. Mai 1859.
bls. 1
Góði vin!
Eg skammast mín að eg í vetr ekki hefir skrifað þér til, til
að svara þér uppá þitt góða bréf í haust. Ég veit ekki hvort þú
hefir fengið miða frá mér í haust eða vetr snemma um
leið og eg sendi þér pappírinn. En hvað um gildir þá er
litlu tapað þó það aldrei hafi komið fram. Mig langar til
að vita hve marga Hánefi bjúgnefi söðulnefi þú hefir dregið
upp á dúk eðr pappír í vetr, og hversu margar stíngilnefjur,
hefðir þú skipt í dálka, þá væri efni í nyja hagfræði handa
Arnljóti að ári. Þú ættir nú að vera kominn til Munchen
þar sem Maurer er; eg hefi séð í blöðunum, að mörg hundr-
uð af heldra kvennfólki þar hafi sagt Frökkum stríð á hendr,
á þann hátt, að þær hafa gengið í félag, að hafna öllum frans-
kum móðum. [sk 1] Nú eru allir hugvitsmenn þará ráð-
stefnu, hvern búning þær eigi taka í staðinn. Þar ætti því
að vera kominn einn talsmaðr fyrir húfu og eðr fald ef vel
vildi verða, og væri enginn betr til þess kjörinn en þú. Nú
er eg hræddr um, að fáar verði til að sinna faldinum, nema
bls. 2
ef vera skyldi kona Maurers[sk 2].
Eg vonast eptir bréfi frá þér nú með póstskipi, eg skrifa
ekki meira að sinni því mig vantar efnið í það. -
Lifðu allar stundir vel. Þinn einlægi vin
- Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
- Dagsetning: 07.2011
- Sjá einnig:
- Skýringar:
- Tilvísanir:
- Tenglar: