„Bréf (SG02-107)“: Munur á milli breytinga
(→bls. 1) |
Ekkert breytingarágrip |
||
(2 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum) | |||
Lína 18: | Lína 18: | ||
[[File:SG02-107_1.jpg|380px|thumb|right| <br /> [http://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=498581 Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.]]] | [[File:SG02-107_1.jpg|380px|thumb|right| <br /> [http://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=498581 Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.]]] | ||
*ATH. Í efra vinstra horn hefur Sigurður skrifað: Svarað | (*)ATH. Í efra vinstra horn hefur Sigurður skrifað: Svarað | ||
Lína 116: | Lína 116: | ||
==Tenglar== | ==Tenglar== | ||
[[Category: | [[Category:Bréf]] [[Category: Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni til Sigurðar Guðmundssonar]] [[Category:All entries]] |
Nýjasta útgáfa síðan 8. september 2015 kl. 20:51
- Handrit: SG02-107 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási
- Safn: Þjóðminjasafn Íslands
- Dagsetning: 16. jan. 1866
- Bréfritari: Ólafur Sigurðarson
- Staðsetning höfundar: Ási
- Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
- Staðsetning viðtakanda:
- Lykilorð: Alþingið, fjárhagsmálin, gullsmiður
- Efni: „Rifjaðir eru upp fundir Ólafs og Sigurðar syðra. Rætt um þingið. Enn á Ólafur gripi í vinnslu hjá gullsmið og biður Sigurð annast það mál. Athugasemd um Jón Sigurðsson og fjárhagsmálin. “ Sarpur, 2015
- Nöfn tilgreind: Gullsi = Sigurður Vigfússon, Jón Sigurðsson
Texti:
bls. 1
(*)ATH. Í efra vinstra horn hefur Sigurður skrifað: Svarað
Ási 16. Janúar 1866
Kæri frændi!
Hafðu þökk fyrir tilskrifið af 8. Nov. síðstl.
eins og allt alúðlegt í sumar, þó við gættum
ekki að kyssast í myrkrinu hjá Brúsast.
Við ættum að vera þeir menn sem byggja
vinskap eða góða frændsemi á öðru en
kossaflensi, enda munum við báðir hafa verið
jafnsekir í þessari skilnaðarsynd; kannske
þetta hafi líka verið fyrirboði þess, að við
eigum aptur að sjást syðra, því þó eg vel
vitia að eg hafi ekki farið mér til mikils
sóma í sumar, og þyki líklegt að svo muni
lengst verða, þá fynnst mér þó, að bændurn-
ir megi ekki missast af þinginu, og víst
kvíði eg minna fyrir að koma suður í ann-
að sinn, þar sem eg þekki nú bæði menn
og siði; vest þyki mér að eg er hræddur um
að þingið sé á apturfaravegi. -
Eg skrifa nú Gullsa, og bið þig að herða
á honum það sem þú getur, að eg fái nú
bæði pörin og 2 koffur fyrir páskana, eg set
það upp við hann.
Illa launa landar Jóni okkar Sigurðs-
syni að vera að skrifa um hann skammir
útaf fjárhagsmálinu, því eg er þó sannfærð-
ur um, að hann hefur þar farið eptir bestu
sannfæringu, að því leyti sem hann leiðbeindi
bls. 2
þinginu, og alltaf þykir mér mjög ótrú-
legt að þessir herrar sjái betur fram í veg-
inn í því máli en hann. Mikið gaman
hefði mér þótt að fá að sjá þetta blað úr
Föðurlandinu, hefðir þú getað útvegað mér
það.
Þinn frændi
Ó. Sigurðsson
- Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
- Dagsetning: 07.2011