„Bréf (SG02-79)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
m (→bls. 1) |
||
Lína 57: | Lína 57: | ||
hafi rendsur?* fyrir eða gustus - þessum þú- | hafi rendsur?* fyrir eða gustus - þessum þú- | ||
um | um artificia, þeir eru engir artifir | ||
og þykjast einusinni ekki vera það. Þú | og þykjast einusinni ekki vera það. Þú |
Útgáfa síðunnar 3. janúar 2017 kl. 20:07
- Handrit: SG 02-79 Bréf frá Magnúsi Stephensen lækni
- Safn: Þjóðminjasafn Íslands
- Dagsetning: 4. jan. 1859?
- Bréfritari: Magnús Stephensen, læknir
- Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
- Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
- Staðsetning viðtakanda:
- Lykilorð: tíðarfar, Íslendingar, Kaupmannahöfn
- Efni: „Athugasemdir um bréf frá Sigurði. Magnús setur ofaní við Sigurð fyrir hversu tannhvass hann er og fleira. Almenn tíðindi af Íslendingum í Höfn og líferni þeirra og eru ýmsir nafngreindir í þeim umsögnum. Að hluta á latínu.“ Sarpur, 2015
- Nöfn tilgreind: Lárus Sveinbjörnsson, Grímur Thomsen, Blixen-Finecke,barón , ?. Thorsteinsson, Guðbrandur Vigfússon, Konráð Gíslason?, Konrad Maurer
Texti:
bls. 1
Til S. Guðm.
Havniae a.d. IV Cal. *Majas?*(skrifað ofan í þetta)Janúar 1859
Magnús Stephensen
Artifiri tui maxeine amanti S.d.
Heilla prof?*, gratiar tibi reddo pro tua maxeine
maligna epistola, quam mihi navefumaria
nuper nisisti. Gaudebam te ineolumnem
salvumg esse. Enn/Em?*, ut ad sem/rem?* reverta-
mur,[sk 1] þá eru héðan engar novae res[sk 2], nema
að Austurríki og Frakkland gerere bellum[sk 3]
einsog munt ef til vill hafa heyrt, annars
læt jeg Arnljót[sk 4] sem nú fer heim og Assortar
heimilið segja þér allar fregnir, því jeg hef mjög
mikið að gjöra, einsog þú getur ímyndað þjer.
Quad ad tuam epistolam pertinet: [sk 5]
mihi fumide afg/atg?* audaciter scripta,*
þar sem þú segir að þú ekki getir þolað við nema
2 menn í Caput insula[sk 6], sederg?* musa-
rum efi?*,[sk 7] þú mátt ekki búast við að dónar
hafi rendsur?* fyrir eða gustus - þessum þú-
um artificia, þeir eru engir artifir
og þykjast einusinni ekki vera það. Þú
hefur ekki breytst(sic) það finn jeg og það er nú
bls. 2
annars nógu gott, enn sem sagt þykir mjer
þú vera of tannhvass, reyndar veit jeg að þeir
eru ofur sví virðilegir í Reykjavík margir,
einkum kaupmenn. - Hjerna medal
okkar hefur allt verið þurrt og þef-
lítið hver fer sjer meir eða minna, sumir
drekka þó og rifast og hafa svo hátt að
enginn maður helst við þar inni sem þeir
eru; Hinir eru með annan fótinn hjá
familíunni, og jeg vil varla gefa 4skh.
fyrir karlana, þeir eru annars einsog þegar
þú fæst tala mest um hland og lída-
legheit. Lárus Sveinbjörnsson er nú
kominn inn á Grím Thomsen og hefur
hann komið honum sem kennara hjá Blixen Finecke[sk 8] og er hann þar í hávegum, hann
er nú nýlega kominn frá Hamborg og
með honum víst til Stokkhólms síðarmeir.
Hjer verður víst ógurl. leiðinlegt í sumar
enginn fer heim nema alþingismenn
og *? Thorstensen líklega og Assesser
inn, og Konráð fyrirlíta hver
bls. 3
annan og finnst mjer Guðbr. hafa farist
mjög illa í því máli einsog hans var von, hann
hefur komið fyrirlitningu fyrir Konráði inn
hjá Maurer og það er þó ekki rjett gjert. -
Blessaður vertu sendu mjer nú fáeinar
línur með skipinu núna mjer er
það áríðandi vegna nokkurs.
Svo mæltu set jeg upp gráa húfu, sem
jeg hef fengið í hitunum í sumar svo jeg ekki
brenni, hristi mig svo eg segi vertu
sæll cartis prof?* artifirialis
- Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
- Dagsetning: 07.2011
Sjá einnig
Um CFAB von Blixen Finecke í Dansk biografisk Lexikon (Project Runeberg)
Skýringar
- ↑ ut ad rem revertamur: að ég snúi mér að efninu ("hlutunum")
- ↑ novae res: nýjir hlutir
- ↑ gerere bellum: heyja stríð
- ↑ Væntanlega Arnljótur Ólafsson
- ↑ Quad ad tuam epistolam pertinet: Hvað viðvíkur þínu bréfi.
- ↑ Caput insula: Höfuð eyjunnar = Reykjavík
- ↑ hugsanlega: Caput insula, seder qua musarum esse: í höfuðstaðnum, þar sem menntagyðjurnar sitja. (?)
- ↑ Ráðherrann Carl Frederik Axel Bror baron von Blixen-Finecke (1822- 1873). Nemandi Lárusar hefur þá væntanlega verið sonur hans (síðar hofjægermester og barón,) Friðrik Theodor von Blixen-Finecke (1847- 1919), en Arnljótur Ólafsson varð svo næsti kennari hans.