„Bréf (SG02-169)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
m (1 bréf (SG-02-169) færð á Bréf (SG02-169)) |
(Enginn munur)
|
Nýjasta útgáfa síðan 12. september 2015 kl. 10:48
- Handrit: SG02-169 Bréf frá Sigurði Vigfússyni, gullsmiði og fornfræðingi
- Safn: Þjóðminjasafn Íslands
- Dagsetning: 31. ágúst 1857
- Bréfritari: Sigurður Vigfússon
- Staðsetning höfundar: Reykjavík
- Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
- Staðsetning viðtakanda: Kaupmannahöfn
- Lykilorð: Forngripasafnið, kvennbúningur, konur, teikningar
- Efni: „Beiðni um teikningar af stúlku á íslenska búningnum, beltinu ofl. Einnig biður hann um bók um Forngripasafnið. Tilefni þessara bóna er að konur - kunnugar Sigurði eru að sauma sér búning.“ Sarpur, 2015
- Nöfn tilgreind:
Texti:
bls. 1
Reykjavik þann 31 Agust 1857
Góði vinr og nafni!
eg hefi stuttan tíma nuna og bæti það upp seinna
en blessaðr sendu mér nú teikningu af stúlku
með Islenska bunignum eins og hann er i almætti
einu og af beltinu ens og okkr kom saman um
að það ætti að vera og af réðum og hinu og þessu
og jafnvel bókina með mindonum af forngripa
safninu því eg gleimdi að fá mér hana aðr en
eg fór Guðbr: hjalpar mér um fé ef þú þarft fyr-
ir han ella skal eg siðar á þessu liggur mér
nærri lífið því eg er komin í þing við konr og
stulkr að sníða búning en hef engar mindir
fallegar a sína eða neitt en, en vísa öllum
i ritjörð þína og held mjög fram fornum
búning en blessaðr sem fyrst, fyrirgefðu þetta
og lifðu heill og vel
Sigurð Vigfússon
bls. 2
AUÐ SÍÐA
bls. 3
AUÐ SÍÐA
bls. 4 / forsíða
- ATH skrifað lóðrétt á miðja síðu
S.S.
Herra Málara S: Guðmundssyni
Kaupmannahöfn
- Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
- Dagsetning: 07.2011