„Bréf (SG02-234)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
(→bls. 2) |
||
Lína 79: | Lína 79: | ||
Eiríkur Briem. | Eiríkur Briem. | ||
---- | ---- | ||
* '''Skráð af''': Edda Björnsdóttir | * '''Skráð af''': Edda Björnsdóttir | ||
Lína 84: | Lína 98: | ||
---- | ---- | ||
==Sjá einnig== | ==Sjá einnig== | ||
==Skýringar== | ==Skýringar== |
Útgáfa síðunnar 12. september 2015 kl. 15:04
- Handrit: SG02-234 Bréf frá Eiríki Briem, prestaskólakennara
- Safn: Þjóðminjasafn Íslands
- Dagsetning: 13. nóvember 1876
- Bréfritari: Eiríkur Briem, prestaskólakennari
- Staðsetning höfundar: Steinsnes
- Viðtakandi: Jón Sigurðsson, forseti
- Staðsetning viðtakanda: Kaupmannahöfn
- Lykilorð: Þingvellir, kort, ritgerð
- Efni: “Útgáfa á Þingvallakorti Sigurðar og ritgjörð er því fylgir. Útvegun á Íslandskorti.“ Safn Sigurðar Guðmundssonar Aðfangabók Þjóðminjasafnins Íslands, bls. 73 (Sarpur, 2015)
- Nöfn tilgreind:
Texti:
bls. 1
Steinsnesi 13. Nóv. 1876
Herra skjalavörður Jón Sigurðsson
Eg þakka yður yðar góða brjef; mjer er öldungis
sama hvort Þjóðvinafjelagið eða bókmenntafjelagið
kaupir og gefur út Þingvallakortið; en getur
Þjóðvinafjelagið gjört það? Því það er aðalatriðið
að kortið komist út. Ritgjörðin yrði rúmar 3 arkir
prentaðar, en þarf að hreinskrifast undir prentun;
henni fyljga mikil skilríki og heimildir, sem ekki
er ætlað til að prentast. Kortið sjálft er svo
lasburða að það er einganvegin til þess að fara
margra handa á milli; verðið var tiltekið svo
lágt, að mjer eígi sýndist nein áhætta fyrir
fjelagið að kaupa það ósjeð; hvað um það; eg vil
ekki sleppa kortinu út fyrir haf, me nema
bls. 2
vissa sje fyrir að það verði strax gefið út; eg get
ef til vill sýnt yður það í sumar í Reykjavík
eða sent yður það, ef eg yrði búinn að taka
kopíu af því, sem eg eigi hefi getið snúist
við.
Maður nokkur hefur beðið mig að útvega
sjer hinn stóra uppdrátt Íslands, ferníseraðan,
límdan á ljerept og settan á stokka; og vil eg
biðja yður að senda mjer hann við fyrsta tæki-
færi á Skagaströnd.
Kona mín og tengdamóðir biðja ástsamlega
að heilsa. Eg kveð yður svo með beztu óskum
Með virðingu
Eiríkur Briem.
- Skráð af: Edda Björnsdóttir
- Dagsetning: Júlí 2013