„Konurnar“: Munur á milli breytinga

Úr Sigurdurmalari
Fara í flakkFara í leit
Lína 13: Lína 13:


==Ísland 1856==
==Ísland 1856==
[[Sigurlaug Gunnarsdóttir]] (f. 29. mars 1828, d. 20. júlí 1905,)
'''[[Sigurlaug_Gunnarsdóttir_(í_Ási) |Sigurlaug Gunnarsdóttir]]''' (f. 29. mars 1828, d. 20. júlí 1905.)
Eiginkona [[Ólafur Sigurðsson (í Ási)|Ólafs Sigurðssonar í Ási]], frænda [[Sigurður Guðmundsson|Sigurðar Guðmundssonar]].
Eiginkona [[Ólafur Sigurðsson (í Ási)|Ólafs Sigurðssonar í Ási]] (g. [[1854]],) frænda [[Sigurður Guðmundsson|Sigurðar Guðmundssonar]].
<br/>Sigurlaug var að öllum líkindum fyrsta konan sem saumaði faldbúning eftir hugmyndum Sigurðar. Í heimsókn sinni til Íslands 1856, ræddu hún og Sigurður mikið um búninginn: "Hann dvaldi þar í 2 daga og talaði margt við hana um íslenska kvenbúninginn, sem hann var þá farinn að hugsa um að endurbæta."
<br/>Sigurlaug var að öllum líkindum fyrsta konan sem saumaði og bar faldbúning (eða útgáfu af honum) eftir hugmyndum Sigurðar. Hún kom í honum í brúðkaup þann 18. júní [[1860]].
Sigurlaug var líklega fyrst til að bera nýja búninginn (eða útgáfu af honum) þegar hún kom í honum í brúðkaup þann 18. júní 1860.
Í heimsókn Sigurðar til Íslands [[1856]], ræddu þau mikið um búninginn þegar hann dvaldi að Ási: "Hann dvaldi þar í 2 daga og talaði margt við hana um íslenska kvenbúninginn, sem hann var þá farinn að hugsa um að endurbæta." ([http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=162582 Kvennablaðið, 8 árg. 1 tbl.] 28. Jan. 1902, [http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2222647 bls. 2])


==Ísland 1858-1874 í Reykjavík==
==Ísland 1858-1874 í Reykjavík==

Útgáfa síðunnar 7. janúar 2013 kl. 23:11

Úr Skugganum...

Eins og víðar, fyrr og síðar, eru konur í bakgrunni og jaðri þessarar sögu þó framlög þeirra séu mörg, merkileg, og merkjanleg. Það þarf ekki að líta lengi yfir völlinn til að greina þær í myrkrinu sem leggst yfir fólk sem ljós sögunnar fær ekki að skína á. Áhrif þeirra á framkvæmdir Sigurðar málara og í kringum Kvöldfélagið eru reyndar mun ljósari en víða annars staðar. Fyrsta skrefið í að draga þær fram í sviðsljósið er að bera kennsl á þær og nefna. Þessi síða þjónar þeim tilgangi að draga þær fram svo unnt sé að setja framlag þeirra, áhrif og sköpunarkraft í sviðsljósið. Uppröðuninn á þessari síðu mun breytast eftir því sem fleiri nöfn og tengsl birtast. Byrjað verður á að einkenna konurnar í lífi Sigurðar eftir því hvar og hvenær þær koma fyrst við sögu, svo tenglsanetið komi sem best í ljós. Ef vel lætur, mun fjöldi þeirra krefjast betri skilgreininga með tímanum. (~KA, janúar 2012)

Skagafjörður 1833-1849

Kaupmannahöfn 1849-1858

Ísland 1856

Sigurlaug Gunnarsdóttir (f. 29. mars 1828, d. 20. júlí 1905.) Eiginkona Ólafs Sigurðssonar í Ási (g. 1854,) frænda Sigurðar Guðmundssonar.
Sigurlaug var að öllum líkindum fyrsta konan sem saumaði og bar faldbúning (eða útgáfu af honum) eftir hugmyndum Sigurðar. Hún kom í honum í brúðkaup þann 18. júní 1860. Í heimsókn Sigurðar til Íslands 1856, ræddu þau mikið um búninginn þegar hann dvaldi að Ási: "Hann dvaldi þar í 2 daga og talaði margt við hana um íslenska kvenbúninginn, sem hann var þá farinn að hugsa um að endurbæta." (Kvennablaðið, 8 árg. 1 tbl. 28. Jan. 1902, bls. 2)

Ísland 1858-1874 í Reykjavík

"Konur í húsi Jóns Guðmundssonar ritstjóra:" [sk 1]

  • Hólmfríður Þorvaldsdóttir (f. 29. sept. 1812, d. 25. nóv. 1876)
  • Hólmfríður Björnsdóttir síðar Rósenkranz (f.1842? - d.1922)
  • Kristín Jónsdóttir síðar Krabbe (f.1840? - d.1910)

---

  • Þóra Pétursdóttir "biskups" síðar Thoroddsen

Ísland 1858-1874 utan Reykjavíkur

Konur tengdar og skyldar Kvöldfélagsmönnum

Konur utan Íslands og Danmerkur

Sjá einnig

Skýringar

  1. Sjá: Elsa E. Guðjónsson "Aðfaraorð (2006)." Í Um Íslenskan Faldbúning, eftir Sigurð Guðmundsson, ritstj. Þjóðbúningastofan og Guðrún Gísladóttir, 7-16. Reykjavík: Þjóðbúningastofan, 2006 (1878)

Tilvísanir