„Konurnar“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
|||
Lína 68: | Lína 68: | ||
'''Sigríður Einarsdóttir Magnússon:''' Eiginkona Eiríks Magnússonar, bókavarðar í Cambridge. Eiríkur var stofnfélagi Kvöldfélagsins og fyrsti ritari. | '''Sigríður Einarsdóttir Magnússon (1831-1915):''' Eiginkona Eiríks Magnússonar, bókavarðar í Cambridge. Eiríkur var stofnfélagi Kvöldfélagsins og fyrsti ritari. | ||
Sigríður rak kvennaskóla í Vinaminni (Mjóstræti 3,) í Grjótaþorpi Reykjavíkur, veturinn 1891 til 1892. | Sigríður rak kvennaskóla í Vinaminni (Mjóstræti 3,) í Grjótaþorpi Reykjavíkur, veturinn 1891 til 1892. | ||
Útgáfa síðunnar 27. maí 2013 kl. 22:18
Konurnar koma í ljós...
Eins og víðar, fyrr og síðar, eru konur í bakgrunni og jaðri þessarar sögu þó framlög þeirra séu mörg, merkileg, og merkjanleg. Það þarf ekki að líta lengi yfir völlinn til að greina þær í myrkrinu sem leggst yfir fólk sem ljós sögunnar fær ekki að skína á. Áhrif þeirra á framkvæmdir Sigurðar málara og í kringum Kvöldfélagið eru reyndar mun ljósari en víða annars staðar. Fyrsta skrefið í að draga þær fram í sviðsljósið er að bera kennsl á þær og nefna. Þessi síða þjónar þeim tilgangi að draga þær fram svo unnt sé að setja framlag þeirra, áhrif og sköpunarkraft í sviðsljósið. Uppröðuninn á þessari síðu mun breytast eftir því sem fleiri nöfn og tengsl birtast. Byrjað verður á að einkenna konurnar í lífi Sigurðar eftir því hvar og hvenær þær koma fyrst við sögu, svo tenglsanetið komi sem best í ljós. Ef vel lætur, mun fjöldi þeirra krefjast betri skilgreininga með tímanum. (~KA, janúar 2012)
Skagafjörður 1833-1849
Kaupmannahöfn 1849-1858
Elisabeth Jerichau Baumann (1819-1861)
Ísland 1856
Sigurlaug Gunnarsdóttir (f. 29. mars 1828, d. 20. júlí 1905.)
Eiginkona Ólafs Sigurðssonar í Ási (g. 1854,) frænda Sigurðar Guðmundssonar.
Sigurlaug var að öllum líkindum fyrsta konan sem saumaði og bar faldbúning (eða útgáfu af honum) eftir hugmyndum Sigurðar. Hún kom í honum í brúðkaup þann 18. júní 1860.
Í heimsókn Sigurðar til Íslands 1856, ræddu þau mikið um búninginn þegar hann dvaldi að Ási: "Hann dvaldi þar í 2 daga og talaði margt við hana um íslenska kvenbúninginn, sem hann var þá farinn að hugsa um að endurbæta." (Kvennablaðið, 8 árg. 1 tbl. 28. Jan. 1902, bls. 2)
Ísland 1858-1874 í Reykjavík
"Konur í húsi Jóns Guðmundssonar ritstjóra:" [sk 1]
- Hólmfríður Þorvaldsdóttir húsfreyja, Reykjavík (f. 29. sept. 1812, d. 25. nóv. 1876) Eiginkona Jóns ritstjóra
- Kristín Jónsdóttir síðar Krabbe (f.1840? - d.1910) Dóttir Jóns og Hólmfríðar
- Hólmfríður Björnsdóttir síðar Rósenkranz (f.1842? - d.1922) Frænka Hólmfríðar
- Guðrún Borgfjörð (1856-1930) var sem ung stúlka oft á heimili Jóns ritstjóra. Að beiðni Hólmfríðar, konu Jóns, studdi hún Sigurð að sjúkrahúsinu , að banalegu sinni í September 1874, þegar hann gat varla gengið vegna mæði.[sk 2]
---
Þóra Pétursdóttir "biskups" síðar Thoroddsen Nemandi Sigurðar. Saumaði fyrsta fánann með fálka-merki Sigurðar.
---
Guðrún Gísladóttir síðar Briem (28. janúar 1848 – 2. mars 1893). Nemandi Sigurðar. Gaf út "Um íslenzkan faldbúning með myndum eptir Sigurð málara Guðmundsson." (Kbh., 1878)
---
Ísland 1858-1874 utan Reykjavíkur
Konur á myndum eftir Sigurð
Tenglar vísa allir á lýsingar í: Halldór J. Jónsson. "Mannamyndir Sigurðar málara" Árbók Hins íslenska Fornleifafélags 74. árg. 1977, bls 7-62.
- Kristín Jónsdóttir Krabbe (1841—1910) húsfreyja, Kaupmannahöfn
- Arnfríður Benediktsdóttir (1569—1647) húsfreyja, Skarði, Skarðsströnd
- Elín Thorarensen, f. Havsteen (1800—1873) húsfreyja, Enni
- Guðlaug Aradóttir (1804—1873) húsfreyja, Reykjavík
- Herdís Benedictsen (1820—1897) húsfreyja, Flatey
- Hólmfríður Þorvaldsdóttir (1812—1876) húsfreyja, Reykjavík
- Ingibjörg Ebenesersdóttir Magnússen (1812—1899) húsfreyja, Skarði, Skarðsströnd
- Ingunn Jónsdóttir Ólsen (1817—1897) húsfreyja, Þingeyrum
- Kristín Sveinbjarnardóttir Hjaltalín (1833—1879) húsfreyja, Stykkishólmi
- Marie N. Finsen, f. Möller (1803—1886) húsfreyja, Reykjavík
- Sesselja Þórðardóttir Thorberg (1834—1868) húsfreyja, Reykjavík
- Sigríður Arnljótsdóttir (1860—1863)
- Solveig Eiríksdóttir (1780—1868) „Lúsa-Solveig"
- Sylvía Níelsdóttir Thorgrímsen (1819—1904) húsfreyja, Eyrarbakka
- Þuríður Sveinbjarnardóttir Kúld (1823—1899) húsfreyja, Flatey
Konur tengdar og skyldar Kvöldfélagsmönnum
Hólmfríður Þorvaldsdóttir húsfreyja, Reykjavík (f. 29. sept. 1812, d. 25. nóv. 1876) var móðir Þorvalds Jónssonar (síðar læknir.) Hann var fyrsti varaforseti Kvöldfélagsins. (Eiginmaður Hólmfríðar, Jóns Guðmundsson ritstjóri var ekki meðlimur í Kvöldfélaginu.)
Sigríður Einarsdóttir Magnússon (1831-1915): Eiginkona Eiríks Magnússonar, bókavarðar í Cambridge. Eiríkur var stofnfélagi Kvöldfélagsins og fyrsti ritari.
Sigríður rak kvennaskóla í Vinaminni (Mjóstræti 3,) í Grjótaþorpi Reykjavíkur, veturinn 1891 til 1892.
Ljósmynd af Sigríði frá 1900-1915
Soffía Einarsdóttir (Sæmundsen), prófastsfrú frá Stykkishólmi: Systir Sigríðar Einarsdóttur Magnússon konu Eiríks Magnússonar, bókavarðar í Cambridge. Eiríkur var stofnfélagi Kvöldfélagsins og fyrsti ritari. Við hjónavígslu Soffíu og Sigurðar Gunnarssonar cand. theol. í Dómkirkjunni í Reykajvík í september 1873 var fjöldi kvenna á skautbúningi Sigurðar, en Soffía var hins vegar á hvítum kjól að hætti meginlandsins.