„Bréf (SG02-164)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[File:SG02-164_3.jpg|280px|thumb|right| <br /> [http://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=498442 Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn – © Rekstrarfélag Sarps.]]] | |||
* '''Handrit''': SG02-164 Bréf frá Sigurði Péturssyni, bónda og hreppstjóra, Ási | * '''Handrit''': SG02-164 Bréf frá Sigurði Péturssyni, bónda og hreppstjóra, Ási | ||
* '''Safn''': [http://www.thjodminjasafn.is Þjóðminjasafn Íslands] | * '''Safn''': [http://www.thjodminjasafn.is Þjóðminjasafn Íslands] | ||
Lína 8: | Lína 9: | ||
---- | ---- | ||
* '''Lykilorð''': fjárhagsmál, föðurarfur, giftingar, | * '''Lykilorð''': fjárhagsmál, föðurarfur, giftingar, | ||
* '''Efni''': „Fjárhagsmál Sigurðar, föðurarfur og samskot til hans. Gifting Ólafs Sigurðssonar og bústofn, sá, er hann fékk er hann tók við búi að Ási. Væntanleg gifting dóttur bréfritara og möguleikar á að leysa hana út með nauðsynlegum lífsmeðölum.“ [http://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=498442 Sarpur, 2015] | |||
* '''Nöfn tilgreind''': hr. Guðmann, Ólafur?, hr. Thaae, hr. Havsteen, Ólafur Sigurðsson, Sigurlaug Gunnarsdóttir, Sgr. Gunnar á Skíðastöðum, Jón Guðmundsson | * '''Nöfn tilgreind''': hr. Guðmann, Ólafur?, hr. Thaae, hr. Havsteen, Ólafur Sigurðsson, Sigurlaug Gunnarsdóttir, Sgr. Gunnar á Skíðastöðum, Jón Guðmundsson | ||
---- | ---- |
Útgáfa síðunnar 10. september 2015 kl. 22:13
- Handrit: SG02-164 Bréf frá Sigurði Péturssyni, bónda og hreppstjóra, Ási
- Safn: Þjóðminjasafn Íslands
- Dagsetning: 15. sept. 1854
- Bréfritari: Sigurður Pétursson
- Staðsetning höfundar: Ási
- Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
- Staðsetning viðtakanda: Kaupmannahöfn
- Lykilorð: fjárhagsmál, föðurarfur, giftingar,
- Efni: „Fjárhagsmál Sigurðar, föðurarfur og samskot til hans. Gifting Ólafs Sigurðssonar og bústofn, sá, er hann fékk er hann tók við búi að Ási. Væntanleg gifting dóttur bréfritara og möguleikar á að leysa hana út með nauðsynlegum lífsmeðölum.“ Sarpur, 2015
- Nöfn tilgreind: hr. Guðmann, Ólafur?, hr. Thaae, hr. Havsteen, Ólafur Sigurðsson, Sigurlaug Gunnarsdóttir, Sgr. Gunnar á Skíðastöðum, Jón Guðmundsson
Texti:
bls. 1
Ási þann 15ta Septembr 1854
Ástkæri frændi! Óskir farsælustu!
Hafðu góðar þakkir fyrir þitt kjærkomna tilskrif
af 30ta Júní síðstliðna! samt get eg ekkert sagt þér
um reikningana frá herra Guðmanni fyrr en eg
gjæti í betra tómi feingið Olaf m til að yfirvega
þá. - Sömuleiðis hefi eg ekki tækifæri að senda þér
reikning yfir föðurarf þinn, sem eg hafði þó í
áformi að gjöra við þetta tækifæri, til þess þú vissir
hvurnig á öllu stæði milli okkar; og er nú mjög lítið
það eg vildi hafa vísað þér til hjá herra Thaae,
samt vona eg landsmenn þínir stirki þig töluverdt
í þetta sinn, bæði nær og fjær, sem margir ?* bjándi?*
landar okkar haf látið sjer ant um, bæði í orði sem
verki; já eg gleimdi að það eru 50rd sem hra Havsteen
hefur lofað mjer þú skildir fá hjá yfirmanni hans
herra Thaae
Næstliðið vor giptist Ólafur minn Sigurlaugu dóttir
Sgr Gunnars á Skíðastöðum, þá léði eg honum hálfa
þessa jörðu og Jón bróðir m: með (muntu geta nærri
hvurnig á því stendur) fékk eg honum þá 3 kýr og
kvígu, 3 hross, 20 ær, 20 sauði, 20 gemlínga, og seldi
honum 12 ær að auki, fyrir hverjar Gunnar tillagði verðið
so Ólafr feingi mínar hagvonar?*, enn fremur misföll á
sauðfé þar, sem víða við fjöll og dali; þikir þér nú
nafni! ekki heldur farið að gánga af mjer? þú skildir
svara: eg þyrfti ekki heldur leingi með. - á orði
er líka að önnur Dóttir mín giptist á komandi vori
og mundi eg þá dálítið verða að stirkja hana líka
bls. 2
með nauðsynlegustu lífsmeðöl og þrivanlegustu
áhöldum; við erum við svipuð heilsukjör sem áður
þá altjafnt aukist ýmisleg gránkvæmi og lasleiki
gras og hría ár lítur út fyrir að verði í í betralagi
fiárabli allgóður líka, ef minn mottu sæta honum; enn
kornkaupin þikja heldur útdragssöm en löguð til þess:
að sökkva alþíðunni í óvinnandi skuldir, því heldur sem
nokkrir áttu fremur grannann sauðffénað næst: vor.
að síðustu kveðjum við öll frændsistkyn þín hjerna
þig með óskum als hins fullkomnasta! þinn
þinn vænlegur bróðir
S. Pétursson
bls. 3
AUÐ SÍÐA
bls. 4
ATH skrifað lóðrétt, þ.e. eftir langhlið
S:T:
Málara og Mindasmiðs S: Guðmundssyni
í Kaupmannahöfn
- Skráð af: Heiða Björk Árnadóttir. Yfirfarið: Elsa Ósk Alfreðsdóttir
- Dagsetning: 07.2011