Bréf (SG02-102)
- Handrit: SG 02:102 Bréf frá Ólafi Sigurðarsyni, umboðsmanni, Ási
- Safn: Þjóðminjasafn
- Dagsetning: 23. feb. 1863
- Bréfritari: Ólafur Sigurðarson
- Staðsetning höfundar: Ási
- Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
- Staðsetning viðtakanda:
- Lykilorð:
- Efni:
- Nöfn tilgreind: Sigurður snarfari, Sigurður Stefánsson
- Texti:
bls. 1
Ási 23. Febr. 1863
Kæri frændi!
Eg skrifaði þér að sönnu á dögunum
með Þorláki, en nú fer kunningi minn
Sigurður snarfari suður, og bið jeg hann
að taka hjá þér pörin, ef þau eru nú
til, hann mun ekki setja upp borgun fyrir
það, og lætur þú þá fylgja reikning
yfir allt saman. Jeg var að biðja þig
að ná út fyrir mig alþingistíðindunum
svo þau voru til, þegar Sigurður Stefáns-
son kemur að sunnan í vor, og ítreka jeg
það nú aptur, og legg jeg hér inn fullmakt
handa þér, því Sigurður skrifaði mér að
hann þyrfti, eins og eðlilegt er, bið jeg
þig að borga fyrir mig afhendinguna, ef
hún kostar nokkuð við þig og færa mér
allt til reiknings síðar. - Kona m.
biður þig að útvega sér eitt lóð af vír, en
hún vill hann ekki nema hann sé góður
og svo smár sem unnt er því hún á nóg
af þeim grófari, sem ekki er brúkandi
bls. 2
nema í snúrúr; einnig biður hún mig að spyrja
þig hvað þær selji þarna hjá þér, að baldíra
framaná treyjubarma og hálsmálið, með sama
uppdrætti og var á uppslaginu, þegar þær
leggja allt til sjálfar; hún sendir þér
2rd uppí vírinn. -
Þinn einl. frændi
Ó. Sigurðsson
bls. 3
AUÐ SÍÐA
bls. 4
S.T.
Herra Málari S. Guðmundsson
í/Reykjavík
*ATH Ólafur hefur skrifað til hliðar í hornklofa:
Fylgja 2rd s.m
- Gæði handrits:
- Athugasemdir:
- Skönnuð mynd:[Lbs: Handrit.is]
- Skráð af:: Heiða Björk Árnadóttir, breytt Elsa Ósk Alfreðsdóttir
- Dagsetning: 07.2011
- (Titill 1):
- Sjá einnig:
- Skýringar:
- Tilvísanir:
- Hlekkir: