Konurnar

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 7. janúar 2013 kl. 22:54 eftir Karl (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. janúar 2013 kl. 22:54 eftir Karl (spjall | framlög) (→‎Ísland 1856)
Fara í flakkFara í leit

Úr Skugganum...

Eins og víðar, fyrr og síðar, eru konur í bakgrunni og jaðri þessarar sögu þó framlög þeirra séu mörg, merkileg, og merkjanleg. Það þarf ekki að líta lengi yfir völlinn til að greina þær í myrkrinu sem leggst yfir fólk sem ljós sögunnar fær ekki að skína á. Áhrif þeirra á framkvæmdir Sigurðar málara og í kringum Kvöldfélagið eru reyndar mun ljósari en víða annars staðar. Fyrsta skrefið í að draga þær fram í sviðsljósið er að bera kennsl á þær og nefna. Þessi síða þjónar þeim tilgangi að draga þær fram svo unnt sé að setja framlag þeirra, áhrif og sköpunarkraft í sviðsljósið. Uppröðuninn á þessari síðu mun breytast eftir því sem fleiri nöfn og tengsl birtast. Byrjað verður á að einkenna konurnar í lífi Sigurðar eftir því hvar og hvenær þær koma fyrst við sögu, svo tenglsanetið komi sem best í ljós. Ef vel lætur, mun fjöldi þeirra krefjast betri skilgreininga með tímanum. (~KA, janúar 2012)

Skagafjörður 1833-1849

Kaupmannahöfn 1849-1858

Ísland 1856

Sigurlaug Gunnarsdóttir (f. 29. mars 1828, d. 20. júlí 1905,) Eiginkona Ólafs Sigurðssonar í Ási, frænda Sigurðar Guðmundssonar.
Sigurlaug var að öllum líkindum fyrsta konan sem saumaði faldbúning eftir hugmyndum Sigurðar. Í heimsókn sinni til Íslands 1856, ræddu hún og Sigurður mikið um búninginn: "Hann dvaldi þar í 2 daga og talaði margt við hana um íslenska kvenbúninginn, sem hann var þá farinn að hugsa um að endurbæta." Sigurlaug var líklega fyrst til að bera nýja búninginn (eða útgáfu af honum) þegar hún kom í honum í brúðkaup þann 18. júní 1860.

Ísland 1858-1874 í Reykjavík

"Konur í húsi Jóns Guðmundssonar ritstjóra:" [sk 1]

  • Hólmfríður Þorvaldsdóttir (f. 29. sept. 1812, d. 25. nóv. 1876)
  • Hólmfríður Björnsdóttir síðar Rósenkranz (f.1842? - d.1922)
  • Kristín Jónsdóttir síðar Krabbe (f.1840? - d.1910)

---

  • Þóra Pétursdóttir "biskups" síðar Thoroddsen

Ísland 1858-1874 utan Reykjavíkur

Konur tengdar og skyldar Kvöldfélagsmönnum

Konur utan Íslands og Danmerkur

Sjá einnig

Skýringar

  1. Sjá: Elsa E. Guðjónsson "Aðfaraorð (2006)." Í Um Íslenskan Faldbúning, eftir Sigurð Guðmundsson, ritstj. Þjóðbúningastofan og Guðrún Gísladóttir, 7-16. Reykjavík: Þjóðbúningastofan, 2006 (1878)

Tilvísanir