1 bréf (JStilSG-68-23-06)
- Handrit: B/2 1868, 2 Bréf Jóns Sigurðssonar til Sigurðar Guðmundssonar
- Safn: Bréfasafn Þjóðminjasafns Íslands
- Dagsetning: 23. júní 1868
- Bréfritari: Jón Sigurðsson
- Staðsetning höfundar: Kaupmannahöfn
- Viðtakandi: Sigurður Guðmundsson
- Staðsetning viðtakanda: Reykjavík
- Lykilorð: Forngripasafn
- Efni:
- Nöfn tilgreind:
Khöfn 23. Juni 1868
- Texti:
bls. 1
[Í vinstra horni stendur gamalt safnnúmer með blýanti:]
13. Fgrs.
S. T.
Hra Sigurður Guðmundsson
Rvík.
[Með hendi Sigurðar stendur:]
meðtekið 8. júlí
Nr 570.-572
Khöfn 23. Juni 1868
Kæri vin,
Hérmeð sendi eg yður stokk með grænlenzku
gripunum í, sem við töluðum um í fyrra, ef
þér kynnuð vilja nýta þá til safnsins. Væri svo,
og að þér settið þetta á skrá, þá vildi eg helzt
að það væri talið “frá Halli Ásgrímssyni
nýlendustjóra við Friðriksvon á Grænlandi”,
því hann hefir sent mér það. Hvort þér þá vilið
geta þess, að eg hafi síðan komið því til
safnsins, eða sent það safninu, því ráðið þér.
Á hjálögðum lista fylgir uppskript á hvað
sérhvað heitir, eptir því sem skrifað er í tölum
á hlutina sjálfa.
Yðar skuldbundinn vin
Jón Sigurðsson
- Gæði handrits:
- Athugasemdir: Matthías Þórðarson: „Bréfaviðskifti Jóns Sigurðssonar forseta og Sigurðar Guðmundssonar málara 1861-1874, með athuasemdum og skýringum”, Árbók hins íslenzka fornleifafjelags 1929, bls. 101: Grænlenzku gripirnir eru litlar eftirlíkingar af grænl. gamma (skinntjald), umjak og kajak, sem Hallur hafði fengið á Grænlandi og gaf Forngripasafninu; telst nú nr. 1-3 í Þjóðfræðissafninu.
- Skönnuð mynd:
- Skráð af:: Edda Björnsdóttir
- Dagsetning: Júní 2013
Sjá einnig
Matthías Þórðarson: „Bréfaviðskifti Jóns Sigurðssonar forseta og Sigurðar Guðmundssonar málara 1861-1874, með athugasemdum og skýringum”, Árbók hins íslenzka fornleifafjelags 1929, Reykjavík 1929, bls. 34-107. Hér bls. 52-53.