Konurnar
Smelltu hér til að finna SEARCHTERM1 SEARCHTERM2 í þessu safni.
Úr Skugganum...
Eins og víðar, fyrr og síðar, eru konur í bakgrunni og jaðri þessarar sögu, þrátt fyrir að það þurfi ekki að líta lengi yfir völlinn lengi til að greina þær í myrkrinu sem leggst yfir fólk sem ljós sögunnar fær ekki að skína á. Áhrif þeirra á framkvæmdir Sigurðar málara og í kringum Kvöldfélagið eru þó ljósari en víða annars staðar. Fyrsta skrefið í að draga þær fram í sviðsljósið er að bera kennsl á þær og nefna. Þessi síða þjónar þeim tilgangi að draga þær fram svo unnt sé að setja framlag þeirra, áhrif og sköpunarkraft í sviðsljósið. Uppröðuninn á þessari síðu mun breytast eftir því sem fleiri nöfn og tengsl birtast. Byrjað verður á að einkenna konurnar í lífi Sigurðar eftir því hvar og hvenær þær koma við sögu, svo tenglsanetið komi sem best í ljós. Ef vel lætur, mun fjöldi þeirra krefjast betri skilgreininga með tímanum. (~KA, janúar 2012)