Skjöl (Lbs489,4to 16-17)

Úr Sigurdurmalari
Útgáfa frá 2. september 2024 kl. 21:06 eftir Olga (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. september 2024 kl. 21:06 eftir Olga (spjall | framlög)
Fara í flakkFara í leit

  • Efni: Verkefni (Skjöl Kvöldfélagsins)

Texti


Bls. 1 Eptir að vér nefndarmenn höfum átt með oss 2 fundi, kom oss saman um að stinga upp a ep umræðuefnum þessum. 1. Hvers er ástatt með tómstundir og þjóðmentum á landi hér í samanburði við aðrar þjóðir og hvað mætti gjöra þessu til eflingar? 2. Hvert er þjóðareinkenni vor Íslendinga? 3. Er eptir því sem nú eru tímarnir orðnir haganlegt að 2 séu deildir hins íslenska bókmenntafélags og hin kraptmeiri deildin í Kaupmannahöfn? Sig. Vigf. 4. Staða kvenna hér á Íslandi í fornöld í rettarlegu tilliti og samkvæmt þjóðarandanum? í samanburði við það sem nú er? H.G 5. Er það æskilegt að sparisjóður komist hér á fót hér í bæ (vantar línu/brot í skanni) EBr. 6. Um nauðsyn og fyrirkomulag þjóðsjóðs (banka) á landi hér? G.M 7. Hvernig er saga Árna Magnússonar nefndarinnar, og hvað hefir hún gefið út? G.M.8. Að sýna ganginn í einhverju forngrísku leikriti? J. Bj. X 9. Hvað skal segja um ferðir Íslendinga nú á dögum til Vestur- heims? G.M.10. Um þrifnað dagblaða og tímarita hér á landi? V. Br. X 11. Fjölnir og hans þýðing fyrir þjóðlíf Íslendinga? G.V. 12. Þýðing verzlunarsambands við Noreg? V. Br. 14. Kosmopolit? Sig. Guðm. X 15. Orsakir til óvildar landsmanna við Reykjavík og hvernig henni verður eytt? H. G. 16. Rafsegulþráðurinn? HEH X 17. Gefn? Jens P? 18. Kostir og ókostir hins bundna skóla lífs <add>í Latínuskólanum</add> og hins aka- demíska frelsins í prestaskólanum? H.M.? X: ritgerðarefni. 19. Hvað þykir mæla með og móti því að piltar í latínuskóla- um hafi leikskemmtanir í skólanum <add>hjá sér</add> í leyfum?


Bls. 2 Helgi 20.X Þykir það við eiga að piltar á latínuskólanum haldi dans- leiki á skólanum fyrir sig? Sn. Jónss. 21. Af hverju spretta ásakanir þær allskyns er læknar almennt verða fyrir og hvað má færa hafa þeim til mótmæla? Páll Ól.? 22. Má það þykja nauðsyn eður eigi að bæjir sem Reykjavík hafi einhverjar almennar skemmtanir? Snorri Jóns. 23. Eru ýmsir siðir <add>heldri manna</add> sem Reykvíkingar hafa frábrugðna sveita- mönnum, hérlendis, <add>svo sem</add> gólfþvottur að minnsta kosti einu sinni á viku, eintómur hégómi? Jón Borgf. 24. Gangleri? Júlíus? 25. Hvað skal segja um <add>tóbaks</add> reykingar nú á dögum! Ennfremur hafði nefndin fengið 60 spurningar frá einum félagsmanni eða Stud. Theol. V. Brim og fellst nefndin <add>hún</add> á að þær allflestar væru <add>einkar</add> vel lagaðar til að vera umræðuefni í félagi voru og kunni hún honum því miklar þakkir fyrir risnuskap sinn. - Spurningar þessar fylgja hér með. Reykjavík, 7. Des. 1870 Magnússon. G. Guðmundsson. Helgi E.Helgason Jón Bjarnason. Eiríkur Briem.




  • Gæði handrits:
  • Athugasemdir: Erfið skrift
  • Skönnuð mynd: Ekki til

  • Skráð af:: Júlíana Þ. Magnúsdóttir
  • Dagsetning: 2024

  • Sjá einnig:
  • Skýringar:
  • Tilvísanir:
  • Hlekkir: